

Auðlindir og stjórnarskrá
Margreynt
Ekki skortir almennan vilja. En ákveðin hagsmunaöfl berjast gegn því að þjóðin tryggi sér auðlindirnar með æðstu lögum landsins. Engin önnur skýring er haldbær. Frá aldamótum hafa tvær opinberar auðlindanefndir lagt til skýrt ákvæði um þjóðareign. Stjórnarskrárnefnd sem starfaði 2005 hafði vilja til þess án niðurstöðu, þingmenn Framsóknarflokksins (2007/8) gerðu góðar tillögur. Minna má á að 2006 fluttu Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, tillögu um stjórnarskrárákvæði sem innihélt hugtakið „þjóðareign“ (þótt tillagan hafi gengið of skammt) og á þinginu 2008-9 kom svo enn fram tillaga og nú frá Jóhönnu Sigurðardóttur, Steingrími J. Sigfússyni, Birki Jónssyni og Guðjóni A. Kristinssyni þar sem var hamrað á hugtakinu um þjóðareign sem ekki mætti selja eða láta varanlega af hendi.
Sáttanefndin um sjávarútveg árið 2010 vildi fá ákvæði í stjórnarskrá og kom þá í ljós að LÍÚ var því andvígt fyrir hönd útgerðarmanna sem virðast alveg einangraðir. Stjórnlagaráð tók skörulega á málinu í sínum tillögum og í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2012 og skoðanakönnunum kom fram yfirgnæfandi vilji þjóðarinnar að fá ákvæði um þetta efni í stjórnarskrá. Þorvaldur Gylfason hefur rakið í mörgum greinum að sjá má áform um þetta efni marga áratugi aftur í tíma og koma við sögu menn úr öllum stjórnmálaflokkum. Hvers vegna gerist þá ekkert? Eina rökrétta niðurstaðan er sú að vel skipulagðir og þröngir hagsmunir kringum sjávarútvegsauðlindina ætli að drepa málinu á dreif fram í rauðan dauðann og skapa sér að lokum „hefðarrétt“ til að eigna sér fiskinn í sjónum. Þetta er hin hörmulega staða málsins og hana skynjar þjóðin og traust hennar á valdamönnum og -stofnunum þverr.
Tvær meginstefnur
Fáir þora beinlínis að berjast gegn ákvæði í stjórnarskrá um auðlindir, en lítill minnihluti virðist ætla að beita sér fyrir því að væntanlegt ákvæði verði bitlaust, óljóst og taki ekki á kjarna málsins sem er að naglfesta hugtakið „þjóðareign“. Á málþingi um auðlindir í þjóðareign í liðnum mánuði lýsti Svanfríður Jónasdóttir hvernig tillögur hafa mótast um að festa í sessi skilgreiningu á þjóðareign og hér er byggt á (sjá kynningu á www. landvernd.is). Hún sat einmitt í fyrri auðlindanefndinni undir forystu Jóhannesar Nordals sem sló tóninn og vildi tryggja hagsmuni þjóðarinnar og arðinn til hennar – eins og næstum allir aðrir sem komið hafa að málinu síðan – fyrir utan útgerðarmenn.
Stjórnlagaráð og næsta skref
Ef aðeins auðlindaákvæðið í tillögum stjórnlagaráðs hefði náðst í gegn á síðasta kjörtímabili hefði það verið erindisins virði. Það tókst ekki og því er ákvæði um auðlindir sem heyra undir almannavaldið ekki komið í stjórnarskrá, ákvæði eins og þetta: „…enginn getur fengið auðlindir, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og aldrei má selja þær eða veðsetja.“ (Stjórnlagaráð). Ráðið var einnig efnislega sammála Nordalsnefndinni um að arðurinn af auðlindunum ætti að renna til þjóðarinnar og koma gjald fyrir nýtingu.
Staðan nú? Enn ein þingnefndin sem segist stefna að því að leggja fram tillögu um breytingar á stjórnarskrá er varði auðlindir í þjóðareign. Tvennt ber að hafa í huga þar: Að staðið verði við þetta fyrirheit, og þjóðin láti ekki bjóða sér útþynnt og óljóst almennt orðalag sem gefur færi á því að smygla óheyrilegum auðæfum út um bakdyrnar í hendur á fámennum hagsmunahópi. Þessa vakt þarf að standa og hafa augu á hverjir reynast traustir bandamenn þjóðarhagsmuna.
Skoðun

Gott frumvarp, en hvað með verklagið?
Bogi Ragnarsson skrifar

Augnablikið
Magnús Jóhann Hjartarson skrifar

Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag
Bolli Héðinsson skrifar

„Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum
Eyrún Arnarsdóttir skrifar

Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál
Grímur Atlason skrifar

Í vörn gegn sjálfum sér?
Ólafur Stephensen skrifar

Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Þjóðin stendur með sjúkraliðum
Sandra B. Franks skrifar

Vegið að íslenska lífeyriskerfinu
Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks?
Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Sniðgangan á Rapyd slær öll met
Björn B. Björnsson skrifar

Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka
Birgir Finnsson skrifar

Árið 2023 kemur aldrei aftur
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Trumpistar eru víða
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna
Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar

Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi!
Rakel Ýr Isaksen skrifar

Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar
Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar

Samkeppnin tryggir hag neytenda
Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Stóðhryssur ekki moldvörpur
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Við getum gert betur
Einar Bárðarson skrifar

Tími til að notast við réttar tölur
Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar

Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur?
Valur Elli Valsson skrifar

Ábyrg stefna í útlendingamálum
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Týndu hermennirnir okkar
Bryndís Haraldsdóttir skrifar