Matur

Gómsætar pitsur á tvo vegu

Eva Laufey Kjaran skrifar
Vísir/Stöð 2

Ítalskur pitsubotn

240 ml volgt vatn (mikilvægt að vatnið sé volgt)

2½ tsk. þurrger

1 msk. hunang

2 tsk. salt

2 msk. olía

400-450 g hveiti (gæti þurft meira en minna)

Blandið volgu vatni, geri og hunangi saman í skál. Leggið viskastykki yfir skálina og leyfið gerinu að leysast upp í rólegheitum, eða í 7-10 mínútur. Um leið og það byrjar að freyða í skálinni þá er gerblandan tilbúin. Hellið gerblöndunni í hrærivélarskál og bætið öllum hráefnum saman við, það er góð regla að bæta hveitinu smám saman við.

Látið hnoðast í vélinni í 6-10 mínútur eða þar til deigið er orðið í laginu eins og kúla, einnig á það ekki að vera klístrað.

Setjið viskastykki yfir hrærivélarskálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund eða þar til þar hefur tvöfaldast að stærð.

Hvítlauksolían

3 dl ólífuolía

5 hvítlauksrif

1 tsk. gróft salt

Pressið hvítlauk og blandið honum saman við saltið, hellið olíunni og setjið hvítlaukinn í krukku. Lokið krukkunni og hristið vel saman.

Pitsusósa

1 msk. ólífuolía

1 laukur, grófsaxaður

2 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir

500 ml tómatapassata

Handfylli fersk smátt söxuð basilíka

Salt og nýmalaður pipar

Hitið laukinn í olíunni þar til hann mýkist og verður glær. Bætið hvítlauknum, tómatapassata, basilíku og salti og pipar saman við og leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur.

Humarpitsa

Hvítlauksolía, magn eftir smekk

300 g skelflettur humar, skolaður og þerraður

Kirsuberjatómatar, skornir í tvennt

1 kúla mozzarella-ostur

Salt og nýmalaður pipar

Klettasalat, magn eftir smekk

Parmesanostur, magn eftir smekk

Hitið ofninn í 200°C. Fletjið deigið út og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Smyrjið deigið með hvítlauksolíunni og raðið humrinum og tómötunum ofan á. Kryddið með salti og pipar og stráið ostinum yfir.

Bakið í 12-18 mínútur eða þar til pitsan er orðin gullinbrún. Þegar pitsan er komin út úr ofninum er klettasalati bætt ofan á hana og parmesanosti sáldrað yfir.

Pizza di'capria

1 pitsabotn

4-5 msk. pitsasósa

100 g ferskur aspas, soðinn í saltvatni í 3 mínútur og þerraður

1 rauðlaukur, skorinn í strimla

Geitaostur, magn eftir smekk

Mozzarellaostur, magn eftir smekk

Salt og nýmalaður pipar

Hitið ofninn í 200°C. Fletjið deigið út og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Sjóðið aspas í vel söltu vatni í þrjár mínútur og þerrið hann vel þegar hann er tilbúinn. Smyrjið deigið með pitsusósu og raðið aspas, rauðlauk og ostum ofan á. Kryddið með salti og pipar.

Bakið í 12-18 mínútur eða þar til pitsan er orðin gullinbrún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×