Matur

Amerískar pönnukökur með bláberjasírópi

Rikka skrifar
Pönnukökur eru gómsætar á morgunverðarhlaðborðinu.
Pönnukökur eru gómsætar á morgunverðarhlaðborðinu. visir/evaLaufey

Hérna gefur Eva Laufey lesendum Lífsins frábærar uppskriftir úr þætti sínum Eldhúsið hennar Evu sem sýndur er á fimmtudagskvöldum á Stöð 2.

Amerískar pönnukökur

5 dl hveiti

3 tsk. lyftiduft

½ tsk. salt

2 egg

4 dl AB-mjólk

2-3 dl mjólk

3 msk. smjör (brætt)

1 tsk. vanilla extract eða vanillusykur

1 msk. sykur

1. Sigtið saman hveiti, lyftiduft og salt.

2. Bræðið smjör, leggið til hliðar og kælið.

3. Pískið egg og mjólk saman.

4.Næsta skref er að blanda öllum hráefnum saman í skál með sleif, ég blanda sykrinum saman við í lokin.

5.Leyfið deiginu að standa í 30-60 mínútur áður en þið steikið pönnukökurnar.

6. Hitið smá smjör á pönnukökupönnu og steikið pönnukökurnar í um mínútu eða tvær á hvorri hlið. Þær eru tilbúnar þegar þær eru gullinbrúnar.

Þetta er frábær grunnuppskrift að pönnukökum en stundum bæti ég eplum, bláberjum, bönunum eða súkkulaðispónum út í deigið. Prófið ykkur áfram með það hráefni sem ykkur finnst gott? pönnukökur eru einfaldlega ljúffengar!

Bláberjasíróp

3 dl sykur

3 dl appelsínusafi

3 dl bláber, fersk eða frosin

Rifinn börkur af hálfri sítrónu

Hitið sykur og appelsínusafa í potti þar til blandan er orðin þykk, bætið þá bláberjum og berkinum af hálfri sítrónu út í og leyfið sírópinu að malla í 30 mínútur.


Tengdar fréttir

Döðlukaka með dásamlegri karamellusósu

Sjónvarpskokkurinn og matarbloggarinn Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir snýr aftur á skjáinn á Söð 2 innan skamms með girnilegar og freistandi uppskriftir sem einfalt er að leika eftir. Hérna gefur hún lesendum Matarvísis uppskrift af dásamlegri breskri döðluköku.

Kjúklingasalat Evu Laufeyjar

Fyrsti þáttur af nýrri sjónvarpsþáttaseríu Evu Laufeyjar Kjaran Hermannsdóttur fór í loftið í gær á Stöð 2. Í þáttunum fer Eva Laufey um víðan völl og eldar girnilegan mat fyrir öll tækifæri. Í þættinum bjó hún til girnilega hristinga, granóla og bráðholl.

Sunnudags páskalamb og gómsæt pavlova

Eva Laufey er mörgum kunn úr matreiðsluþáttum sínum Matargleði á Stöð 2. í síðasta þætti eldaði Eva Laufey girnilegt lambalæri með öllu tilheyrandi sem er tilvalið að nostra við um Páskana auk pavlovu í eftirrétt.

Matarmikil fiskiskúpa

Eva Laufey hefur slegið í gegn með nýju þáttaseríunni sinni Matargleði á Stöð 2 Í þættinum í gær bjó hún til gómsæta fiskisúpu.

Eplabaka Evu Laufeyjar

Hér kemur uppskrift að ljúffengri eplaböku úr eldhúsinu hennar Evu á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×