Spaghetti alle vongole Rikka skrifar 28. júlí 2015 15:00 vísir/heida/Binni
Spaghetti með krækling er klassískur réttur sem á rætur sínar að rekja til Ítalíu. Fyrir þá sem hafa tök á gæti verið skemmtilegt að týna krækling með fjölskyldunni fyrr um daginn og elda svo réttinn um kvöldið, svo er um að gera að njóta þess með vönduðu hvítvínsglasi. Spaghetti alle vongole400 g spaghetti1 msk smjör1 msk ólífuolía2 hvítlauksrif, pressuð½ skalottlaukur, saxaður1 tsk karrý½ tsk chili flögur1 sólþurrkaðir tómatar, grófsaxaðir1 kg bláskel250 ml hvítvín50 ml rjómi150 g ferskar grænar baunir (frosnar)salt og nýmalaður pipar3 msk fersk söxuð steinselja Sjóðið pastað samkvæmt pakkningu. Á meðan pastað er að sjóða hitið þá smjör og ólífuolíu á stórri pönnu, gott er að nota wok pönnu. Steikið laukana þar til að þeir verða mjúkir í gegn, kryddið laukana með karrý og chili flögum. Setjið tómatana saman við og steikið áfram í 2 mínútur. Bætið bláskelinni út á pönnuna og hellið hvítvíninu og rjómanum saman við og látið sjóða niður í 2-3 mínútur. Sigtið vatnið frá pastanum og hellið því út á pönnuna ásamt baununum. Kryddið með salti og pipar og stráið steinselju yfir.
Pastaréttir Rikka Sjávarréttir Uppskriftir Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið