Kom manni til bjargar en varð sjálfur fyrir lest og dó Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. mars 2015 13:51 Slysið var í neðanjarðarlestakerfi Lundúna. Myndin tengist fréttinni að öðru leyti ekki. Vísir/Getty
35 ára karlmaður varð fyrir lest og lét lífið eftir að hafa reynt að koma manni, sem féll á teinanna, til aðstoðar. Atvikið varð upp úr miðnætti aðfaranótt sunnudags á Old Street Station í London. Hinn maðurinn, 32 ára karlmaður frá Manchester sem talið er að hafi óvart fallið á teinanna, er á sjúkrahúsi og er ástand hans alvarlegt. Lögregluyfirvöld í Bretlandi rannsaka málið sem slys.BBC hefur eftir ónafngreindu vitni, sem var að bíða eftir lest, að hann hafi staðið skammt frá þegar lestinni var ekið á mennina tvo. „Annar þeirra var að hopppa nærri línunni og rann út á teinanna. Áður en það gerðist hafði ég miklar áhyggjur af því að þetta gæti gerst,“ segir maðurinn.Virtust vera vinir eða kunningjar Hann hafi verið sem frosinn þegar lestin kom sekúndum síðar. Vitnið segir að sér hafi virst sem mennirnir tveir hafi þekkst. „Maðurinn sem reyndi að bjarga hinum var á brúninni að reyna að teygja sig til mannsins en það var um seinan. Lestin kom 20 sekúndum síðar.“ Annað vitni lýsir því hvernig hinn látni hafi kastast aftur á pallana þegar lestin skall á honum. „Fólk nálgaðist manninn og það voru öskur. Svo til allt kvenfólk var grátandi og ég stóð þarna með höfuðið í höndum mér.“ Mennirnir tveir voru fluttir á slysadeild þar sem hinn 35 ára gamli lést af sárum sínum í gær.Emergency services out in big numbers at Old Street tube this evening - unpleasant news, an officer said pic.twitter.com/XAuWS1PO31— Tom Beardsworth (@TBeardsworth) March 29, 2015
Mest lesið Enok sakfelldur Innlent Framkoman eftir flogið niðurlægjandi og meiðandi Innlent Fara í saumana á sendiherraskipunum Innlent Skoða að hefja gjaldtöku við Gróttu Innlent Ólga meðal íbúa vegna fyrirhugaðra framkvæmda Innlent Stunginn í heimahúsi í Súðavík Innlent Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Erlent Sér ekki fyrir sér hvalveiðar í sumar Innlent Vísbendingar um að lúsmýið sé komið á kreik Innlent Ákærður fyrir tilraun til manndráps á Ingólfstorgi Innlent Fleiri fréttir Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Lést af náttúrulegum orsökum Bóluefni gegn flensu og Covid-19 langt á veg komið Macron veðjar á að Frakkar séu í áfalli Fullyrða að gíslar hafi fundist í haldi blaðamanns Mánaðarverkfalli í Færeyjum lýkur Setti sig í samband við ráðgjafa Biden til að mótmæla gagnrýni á AGD Öfgahægrið sækir í sig veðrið en miðjan heldur Forsætisráðherrann segir af sér Macron rýfur þingið og boðar til kosninga Benny Gantz hættur í þjóðstjórn Netanjahús Sjá meira