Kvennafundur í bæjarstjórn Fjarðabyggðar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. ágúst 2015 14:00 Tinna Hrönn Smáradóttir, Kristín Gestsdóttir, Lísa Lotta Björnsdóttir, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir, Pálína Margeirsdóttir fundarstjóri, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og Hulda Sigrún Guðmundsdóttir. Mynd/Helga Guðrún Jónasdóttir „
Þetta var táknrænn fundur í tilefni af 100 ára kosningaafmæli kvenna og segja má að umræðuefnin hafi verið í anda þess,“ segir Eydís Ásbjörnsdóttir um fyrsta fundinn í bæjarstjórn Fjarðabyggðar sem skipaður var aðal- og varakonum í bæjarstjórn. En auk þeirra sat fundinn Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er hópurinn ungur og hress. Eydís er í bæjarstjórn og bæjarráði og fær að finna fyrir því að búa í sveitarfélagi með mörgum þéttbýliskjörnum, er búsett á Eskifirði en starfar sem framhaldsskólakennari í Neskaupstað og hefur gert frá árinu 1999. Aðalskrifstofur bæjarstjórnar eru hins vegar á Reyðarfirði. Er hún ekki ansi mikið á fartinni? „Jú, ég keyri náttúrlega alltaf yfir Oddskarðið í vinnuna og svo er Reyðarfjörður alveg í hina áttina,“ viðurkennir hún. Jafnréttismál voru fyrirferðarmikil á umræddum fundi bæjarstjórnarkvenna. Tillaga um að efla hinsegin fræðslu í grunnskólum Fjarðabyggðar, staða kvenna á vettvangi sveitarstjórnarmála á landsvísu og viljayfirlýsing um átak gegn heimilisofbeldi voru meðal umræðuefna. Völd karla voru líka svolítið gagnrýnd, að sögn Eydísar. „Það er ekki alltaf auðvelt að vera kona í bæjarstjórn og bæjarráði Fjarðabyggðar, því það er karllægt umhverfi. Sviðsstjórar eru sex, þar af fimm karlmenn, bæjarstjóri er karl og bæjarritari líka en ég tek fram að ég hef átt mjög gott samstarf við alla á þessum vettvangi. Svo á ég eintóma stráka og er ýmsu vön!“ Eydís tekur líka fram að hlutföllin innan bæjarstjórnar hafi breyst í sumar þannig að í fyrsta skipti séu konur þar í meirihluta og hið sama gildi um hafnarstjórn. Hún er ein þeirra sem þar sitja og hafnirnar í sveitarfélaginu eru margar og stórar svo það er viðamikið svið.„Það er ekki alltaf auðvelt að vera kona í bæjarstjórn og bæjarráði Fjarðabyggðar, því það er karllægt umhverfi,“ segir Eydís.„Það eru mikil umsvif í höfnunum enda stór sjávarútvegsfyrirtæki hér eins og Síldarvinnslan í Neskaupstað, Eskja á Eskifirði og Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði, öll með öfluga starfsemi. Svo er auðvitað álverið með mikinn útflutning svo það er líf og fjör í Fjarðabyggðarhöfnum,“ segir Eydís sem ásamt Esther S. Gunnarsdóttur er á öðru kjörtímabili sínu í sveitarstjórninni. Það er líka nýlunda. Eydís tekur þó fram að hún hafi haft góða kvenfyrirmynd því tengdamóðir hennar, Hildur Metúsalemsdóttir, hafi setið í bæjarstjórn Eskifjarðar fyrir Alþýðubandalagið frá 1970 til 1978. Eydís vonar að með fundinum í fyrradag og öðrum viðburðum í tengslum við kosningaafmælið geri almenningur sér betur grein fyrir mikilvægi kosningaréttarins og nýti hann. „Það er áhyggjuefni hversu dræm kosningaþátttakan hefur verið í síðustu kosningum á Íslandi og þá sérstaklega meðal ungs fólks,“ segir hún. „Kosningaréttur er nefnilega víða ekki sjálfsagður hlutur í hinni stóru veröld.“
Mest lesið Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Lífið Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Ofurskvísur landsins fögnuðu „Heiðarlegri“ fatalínu Heiðar Tíska og hönnun Mömmu þykir ekki vænna um Friðrik Dór en Jón Ragnar Lífið Fleiri fréttir Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Áttaði sig á stöðunni á fundi með Höllu Ungt athafnapar keypti hönnunarhús Margrétar í Garðabæ Françoise Hardy er látin Framleiða meiri varning „vegna fjölda áskorana“ Sjá meira