Málfræðingur af nýja skólanum sem hefur séð heiminn Kjartan Atli Kjartansson skrifar 5. desember 2015 13:45 Eyvindur P. Eiríksson rithöfundur. Vísir
Í tilefni af áttræðisafmæli rithöfundarins Eyvindar Péturs Eiríkssonar verður efnt til málstefnu um verk hans og feril í Norræna húsinu í dag og í kvöld verður fagnað á Sólon, þar sem fjöldi manns kemur fram. Eftir Eyvind liggja fjölmörg verk; skáldsögur, ljóðabækur, leikrit og fleira. Hann hefur ferðast mikið vegna listarinnar og búið víða. Hann hefur gengið í ýmis störf, þó hann hafi lengst um sinnt kennslu. Hann er hörkutól, er meðal þeirra síðustu sem ólust upp á Ströndum og Hornströndum.Gaman að líta til baka „Já, það er afsakplega gaman að líta til baka og sjá þennan fjölda verka sem liggur eftir mann. Allt í allt eru þetta um fjörutíu einstök verk,“ segir Eyvindur þegar blaðamaður innir hann eftir hversu mörg verk liggja eftir hann. Eyvindur er skarpur og á nóg af sögum af viðburðaríkri ævi. Sögur sem ekki rúmast fyrir í einni blaðagrein. Sögur um ferðalög, hvort sem það eru ferðir um Sovétríkin á sjöunda áratug síðustu aldar eða heimsókn til frumbyggjabyggða Kanada fyrir um þrjátíu árum. „Ætli ég megi ekki teljast svolítið duglegur,“ segir hann og heldur áfram: „Sérstaklega því skrifin verða ekki að mínu aðalstarfi fyrr en ég kem heim frá Danmörku og Finnlandi í kringum 1990.“Erpur EyvindarsonStoltur af börnunum Eyvindur er ekki síst þekktur fyrir afsprengi sín, sem hafa haft áhrif á íslenska menningu, en hann á fjögur börn. „Ég er ótrúlega stoltur af börnunum mínum. Ég á dótturina Rósu sem er mikil dugnaðarkona. Síðan á ég þrjá syni, Eiríkur er tölvunarfræðingur búsettur í Danmörku og svo búa þeir Eyjólfur og Erpur hér á landi.“ Þeir tveir síðastnefndu eru auðvitað þekktir fyrir framlag sitt til íslenskrar rappmenningar. „Eyjólfur er frumkvöðullinn í þessu. Það verður bara að segjast eins og er að Erpur lærði af honum, Eyjólfur dró hann inn í þetta. En Erpur er „slagfærdig“ eins og sagt er,“ útskýrir hann og hlær.Málfræðingur af nýja skólanum Eyvindur er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri. Hann er með BA-gráðu frá Háskóla Íslands í dönsku og ensku, ásamt kennslufræði. Síðar nam hann íslensku og finnsku og er cand. mag. í íslenskri málfræði. Í ljósi menntunar sinnar segist hann oft hafa fengið spurninguna um slettur sona sinna í rappinu. „Ég er málfræðingur af nýja skólanum. Ég tel að það sé ekkert að því að við notum tökuorð yfir hugtök sem voru kannski ekki áður til. Mestu máli skiptir að grunnhugsunin sé á íslensku. Móðurmálið stendur okkur svo nærri og tungumálið er svo flókið kerfi, svo samofið okkar grunni. Móðurtungan er dýpst og sterkust í okkur. Þegar lítil mál deyja, þá deyja menningarheimar. Þannig að þegar menn hætta að hugsa á sínu móðurmáli, skapast hætta,“ segir Eyvindur. Hann rifjar upp tíma þegar hann dvaldi á meðal frumbyggja í Kanada. „Þar vorum við með túlka sem skildu ekki tungumálið sem ömmur þeirra og afar töluðu. Þetta voru krakkar sem höfðu lært ensku og skildu nútímasamfélagið, en eldri kynslóðirnar töluðu bjagaða ensku, en tjáðu sig á sínu eigin tungumáli.“Verðlaunaður Eyvindur hefur unnið til nokkurra verðlauna fyrir verk sín, meðal annars Laxenssverðlaunin. Hann hefur einnig verið tilnefndur til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Í kvöld verður hluti verkanna fluttur af ýmsum listamönnum. Meðal þeirra sem koma fram eru Vilborg Dagbjartsdóttir, Egill Ólafsson, Steindór Andersen, Dóri DNA auk margra fleiri, þar á meðal sonanna Erps og Eyjólfs. Ástráður Eysteinsson prófessor heldur erindi um verðlaunasöguna Landið handa fjarskans og Dagnýs Kristjánsdóttir prófessor verður með erindi um eldri ljóð Eyvindar í Norræna húsinu á málstefnunni. Njörður P. Njarðvík prófessor, Jóhanna Harðardóttir Kjalnesingagoði, Hrafn Andrés Harðarson skáld og fleiri varpa ljósi á ýmsa þætti í ferli Eyvindar.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Sjá meira