Víða mætir transfólk fordómum og jafnvel ofbeldi fyrir kynvitund sína. En er vitundarvakning að eiga sér stað?
Í dægurmálamenningu má merkja að transfólk verður sífellt meira áberandi. Nýleg dæmi þess er þátturinn Transparent og Netflix-serían Orange is the new black, þar sem transkonan Laverne Cox leikur burðarhlutverk.
Tískuheimurinn hefur einnig tekið við sér í þessum efnum. Transfyrirsætan Lea T sat fyrir í auglýsingaherferð Givenchy árið 2010 og vakti mikla athygli. Síðan hafa margir fylgt í fótspor tískurisans, J.W Andersen, Prada, Gucci svo einhverjir séu nefndir, og á nýliðnum tískuvikum heimsborganna var mikið um vísanir í transmenningu í hönnun og stíl. Á tískuvikunni í New York stal transfólk hreinlega senunni.
Er transmenning orðin svöl, með aukinni og upplýstari umræðu, eða eru kapítalískir hvatar að baki og transfólk einfaldlega orðinn stærri neytendahópur en áður sem fyrirtæki sjá sér hag í að höfða til? Eða er transfólk nýjasti jaðarhópurinn sem tískuheimurinn sækir innblástur til líkt og hipparnir áður eða pönkararnir eða hommarnir? Hefur tískuheimurinn kannski alltaf dansað á þessari línu?
Rætt er við hjúkrunarfræðing sem starfaði á geðsviði, höfund Hjallastefnunnar og formann samtakanna Trans-Ísland.
Meira um transfólk í fyrsta tölublaði Glamour. Hægt er að kaupa áskrift hér.





