Með berjalit á vörunum Elín Albertsdóttir skrifar 3. desember 2015 11:00 Sandra er hér förðuð með ljóssanseruðum augnskugga yfir allt augnlokið og brúnum til að skyggja augun, svartur eyeliner með spíss og gerviaugnhár. Andlitið er skyggt aðeins og bleikur kinnalitur settur létt á og highlighter til að gefa húðinni ljóma. Á vörunum er svo fjólubleikur varalitur.
Eitt af heitustu tískutrendum um þessar mundir eru dökkar varir. Sumir ganga svo langt að hafa varirnar næstum því svartar. Tískuhönnuðurinn Marc Jacobs setti dökkan berjalit á fyrirsætur sínar þegar hann kynnti haust- og vetrarlínu sína. Dökkrauðar varir passa auk þess vel við jólahátíðina. Sandra María Ásgeirsdóttir förðunarfræðingur segir að dökkir berjalitir á varirnar séu mjög vinsælir um þessar mundir. „Rauði liturinn er síðan alltaf klassískur um jólin. Ef ég ætti að lýsa jólaförðuninni myndi ég segja falleg, ljómandi húð og gylltir, brons og brúnir augnskuggar. Þá er gaman að nota glimmer um áramótin,“ útskýrir hún. „Það geta allir notað þessa liti, einungis þarf að finna rétta litinn fyrir hvern og einn. Ég myndi ráðleggja konum að fá leiðbeiningar um þennan eina rétta lit hjá starfsfólki í snyrtivöruverslunum,“ segir hún enn fremur.FLOTT FÖRÐUN Sandra er hér með léttari förðun. Kremlitaður augnskuggi á innri helming augnloksins, gylltur litur yst og dökkbrúnn til að skyggja aðeins yst. Á vörunum er fjólublár mattur varalitur. Augabrúnirnar eru fylltar með brúnum augnskugga og greiddar með augabrúnageli. Andlitið er skyggt létt og ferskjubleikur kinnalitur notaður.Sandra María hefur unnið við förðun í auglýsinga- og kvikmyndagerð. Hún fylgist vel með tískustraumum. „Þessir dökku berjalitir eru mjög fallegir og hægt að fá þá í ýmsum útgáfum. Best er að láta fagfólkið aðstoða sig,“ segir hún. Þegar Sandra er spurð hvort mikið máluð augu séu enn í tísku, svarar hún því játandi. „Það fer eiginlega eftir því hvað stúlkur vilja mála sig mikið. Sumar vilja vera mikið farðaðar. Hins vegar er hægt að vera dökkur um augu með réttri förðun án þess að vera mjög mikið málaður,“ svarar hún.MARC JACOBS Fyrirsætur á tískusýningu Marc Jacobs í New York þegar haust- og vetrartískan 2015 var sýnd. Dökkar varir voru áberandi.Sandra bætir við að hver kona geti alveg ráðið eigin förðun og ekki sé endilega nauðsynlegt að fylgja tískutrendum. Hún segir að eyeliner sé enn mikið notaður og fyrir jólin sé skemmtilegt að nota brúnan eða bronslitaðan í stað þess svarta. Eyeliner er upplagt að setja bæði undir og yfir augun. Þá segir Sandra að sumir telji að ekki ætti að vera sami litur á augum og á jólakjólnum. „Mér finnst ekkert þurfa að fara eftir því. Það er til dæmis allt í góðu að hafa glimmer á augum þótt maður sé í glitrandi-kjól.“ Sandra hefur starfað sem förðunarfræðingur í nokkur ár en förðun hefur alltaf verið áhugamál hjá henni. Hún útskrifaðist í fyrra og hefur síðan sótt fagnámskeið í London. „Það hefur aukist mjög mikið að konur komi í förðun fyrir jólahlaðborð, nýársfagnaði eða árshátíðir,“ segir hún. Líklegast eru flestir sammála um að falleg förðun dragi það besta fram í hverri konu. Þegar Sandra er spurð um tískuna eftir áramót, svarar hún. „Dökku berjalitirnir verða áfram í vetur.“
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“