Margir mættu að skoða nýjan Audi Q7 Finnur Thorlacius skrifar 9. september 2015 16:15 Audi Q7 af annarri kynslóð var skoðaður í krók og kima.
Nýr og tilkomumikill Audi Q7 var frumsýndur fyrir fullu húsi í Audi sal HEKLU síðastliðinn laugardag. Stjarna dagsins vakti að vonum mikla lukku meðal gesta enda um glæsilegan farkost að ræða sem beðið hefur verið eftir með ofvæni. Önnur kynslóð Q7 tekur verulega fram fyrirrennaranum hvað varðar hönnun, gæði og tækni. Þessi flotti lúxusjeppi hefur hlotið mikið lof fyrir einstaka aksturseiginleika og aðstoðarkerfi og hann er hlaðinn tækninýjungum. Bíllinn vakti mikinn áhuga gesta sem skoðuðu hann í krók og kima og það var augljóst að hann féll í kramið. „Audi Q7 er bíll sem hefur reynst viðskiptavinum okkar afar vel og hann á marga trygga aðdáendur sem þekkja hann aðeins af góðu. Frumsýningin heppnaðist gríðarlega vel, mikill fjöldi fólks kom og það var mikil stemning í Audi salnum,“ segir Jóhann Ingi Magnússon, sölustjóri Audi.Fjölmargir lögðu leið sína í Heklu á laugardaginn.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lækkar eigin laun Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður