Lífið

Frá verslun í listsköpun

Elín Albertsdóttir skrifar
Sævar Karl hefur snúið við blaðinu og helgar líf sitt myndlistinni. Verkin hans eru litrík og falleg.
Sævar Karl hefur snúið við blaðinu og helgar líf sitt myndlistinni. Verkin hans eru litrík og falleg. MYND/STEFÁN
Sævar Karl Ólason kaupmaður í áratugi ákvað að selja verslun sína í góðærinu og helga líf sitt myndlist. Hann fór í Listaháskóla Íslands og flutti síðan til München þar sem hann vinnur að listsköpun sinni. 

Sævar Karl minnist jólamánaðarins með hlýju. „Það var virkilega skemmtilegt að vera farsæll kaupmaður, sérstaklega þegar maður eignast marga fastakúnna. Ég var svo lengi í þessu starfi að maður afgreiddi nokkrar kynslóðir í sömu fjölskyldu. Desember var skemmtilegur í verslun en um leið mjög annasamur. Jólaverslunin var svolítið öðruvísi hér áður fyrr. Allir komu í miðbæinn rétt fyrir jól og það var mikil stemning. Nú hefur verslunin færst mikið yfir í verslunarmiðstöðvar og á netið. Þetta var góður tími en núna er ég að gera annað skemmtilegt, það er myndlistin sem hefur lengi heillað mig,“ segir Sævar Karl.



Forðast myrkrið

„Þegar við hjónin seldum fyrirtækið ákváðum við að breyta til. Báðir synir okkar hafa verið búsettir erlendis lengi og okkur fannst við vera nær fjölskyldunni með því að búa í Þýskalandi. Annar sonur okkar, Þórarinn Örn, er læknir í Ósló, hann er kvæntur og á þrjú börn. Yngri sonurinn heitir Atli Freyr en hann starfar við tískugeirann í Mannheim í Þýskalandi þrátt fyrir að vera menntaður heimspekingur. Það má kannski segja að hann hafi fetað í fótspor mín,“ segir Sævar Karl en hann og kona hans, Erla Þórarinsdóttir, eiga enn húsið sitt í Reykjavík og búa hér yfir sumarmánuðina. „Það er ekki þægilegt að vinna sem listmálari í myrkrinu hér heima á veturna. Ég vil hafa dagsbirtu í kringum mig. Dagurinn er lengri sunnar í Evrópu. Ég er með vinnustofu í München og mála á hverjum degi,“ segir hann en Sævari hefur gengið vel að selja verkin sín í Þýskalandi.

TÖFFARI Gamli kaupmaðurinn sem gekk um í Armani-jakkafötum daglega er kominn í gallabuxur og gallaskyrtu og nýtur lífsins.MYND/STEFÁN
Öfugsnúinn

Sævar Karl er fæddur 1947 og er því 68 ára. Hann fetaði myndlistarbrautina kannski öfugt miðað við flesta sem byrja ungir í listsköpun. „Mér finnst mjög skemmtilegt að sinna listinni núna og hef eignast mikið af góðum vinum á öllum aldri. Aldurinn skiptir engu máli og mér finnst ég alls ekki gamall. Það eru gríðarlega margir mjög góðir listamenn í Þýskalandi og samkeppnin er hörð. Mikið framboð af fínni list,“ segir hann.

Sævar Karl stundaði nám við Myndlistarskólann í Reykjavík á meðan hann var kaupmaður. Síðan skellti hann sér í Listaháskóla Íslands. „Þegar ég flutti til Þýskalands árið 2007 fór ég í þriggja ára nám í myndlist. Ég er búinn að læra mikið hjá vel þekktum og frábærum kennurum. Draumur minn var að læra meira en ég hafði alltaf mjög gaman af því að fara einu sinni í viku í Myndlistarskólann í Reykjavík meðfram vinnunni,“ segir hann. „Það var gott að geta kúplað sig út úr þessu venjulega búðarstressi og kynnast öðruvísi fólki. Ég mæli með því að fólk geri eitthvað skapandi því það nærir sálina,“ segir Sævar Karl sem notar ekki farsíma, einn fárra Íslendinga. „Það hringir enginn í mig,“ segir hann.

Í borg listarinnar

Sævar Karl hefur alltaf verið mikill fagurkeri eins og verslun hans bar vott um. Hann kynnti lúxusfatamerki fyrir Íslendingum sem margir féllu fyrir. Sævar Karl byrjaði ferilinn sem klæðskeri og lagði mikla áherslu á vönduð efni. Þá strax eignaðist hann marga fasta viðskiptavini sem fylgdu honum alla tíð. „Ætli megi ekki segja að klæðskerinn tengist því sem ég er að gera núna, að skapa list. Í München eru einhver bestu söfn sem um getur. Það er stutt fyrir mig að fara og skoða fallega list, til dæmis frá Egyptum, Grikkjum, frá endurreisnartímabilinu eða nútímalist. Þarna eru gríðarlega fjölbreytt söfn auk þess sem stutt er að aka til annarra landa,“ segir Sævar Karl og viðurkennir að það eigi vel við hann að búa í München. 

„Þetta er falleg menningarborg. Hún var endurreist eftir stríð í upprunalegum stíl. Borgin er sjarmerandi og gott fólk sem þarna býr. Við höfum eignast marga góða vini í München.“

Þegar hann er beðinn að lýsa list sinni, svarar hann. „Ég er koloristi, hef gaman af sterkum og skærum litum. Ég mála mikið abstrakt en er líka fígúratífur. Síðan mála ég bæði með akrýl og olíu.“

Fjölbreytt aðventa

Sævar Karl og Erla höfðu ekki áður búið í útlöndum svo þetta er ný reynsla fyrir þau. „Venjulega flytur fólk til útlanda á yngri árum, öfugt við okkur,“ segir hann. Að þessu sinni ætla þau að halda jól og áramót á Íslandi. „Þetta eru önnur jólin okkar hér síðan við fluttum út. Við ætlum að halda jól með tengdamóður minni sem er níræð, hitta ættingja og vini. Það verður virkilega ánægjulegt. Við vorum búin að njóta aðventunnar í Þýskalandi en München er sannkölluð jólaborg. Allar gerðir af jólamörkuðum um alla borg. Í næstu götu við okkar er jólamarkaður sem kallast Pink Market en þar eru samkynhneigðir með sinn markað. Síðan er miðaldamarkaður þar sem fólk er klætt samkvæmt því sem tíðkaðist fyrr á öldum, slær í járn og þess háttar. Aðventan er fjölbreytt og skemmtileg í Þýskalandi.“

Betri miðbær

Þegar Sævar Karl er spurður hvort honum finnist skrítið að ganga Bankastrætið núna og horfa á gamla verslunarhúsið sitt, svarar hann því neitandi. „Að mörgu leyti finnst mér skemmtilegra að koma í Bankastrætið núna en áður. Breytingarnar á borginni eru til mikilla bóta að mínu mati. Það er bæði fallegra um að litast og frábært það sem er verið að gera. Mér finnst þetta allt mjög jákvætt. Það er svo mikið um að vera í miðbænum sem er afar ánægjulegt. Mörg fín veitingahús og maturinn betri. Miðbærinn hefur lifnað við og túristarnir kunna að klæða sig eftir veðri. Við getum margt lært af þeim,“ segir Sævar.

Sævar Karl er með vinnustofu í Reykjavík og aðra í München þar sem hann býr stóran hluta ársins.MYND/STEFÁN
Hann segist ekki vita hvort þau hjónin muni setjast að í Þýskalandi. „Mér finnst ég ekkert eldast og er að gera það sem mér finnst skemmtilegast. Við eigum þrjú barnabörn sem eru miklir vinir okkar og við gerum margt skemmtilegt saman. Það er svo gaman að eiga barnabörn, það er einhver önnur tilfinning heldur en þegar maður eignaðist sín eigin börn,“ segir hann og hlær.

Sævar Karl segist ekki vera neitt sérstakt jólabarn og hefur ekki þörf fyrir að halda í gamlar hefðir. „Á aðfangadag í fyrra fórum við út að borða með góðum vinum í München. Við viljum bara njóta og hafa gaman,“ segir maðurinn sem notaði slagorðið: „Ég hef einfaldan smekk, vel aðeins það besta,“ í auglýsingum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.