Síungt félag sem heldur uppi kraftmiklu starfi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 24. desember 2015 10:15 Kristín hefur ekki gengið í Kvenfélag Þistilfjarðar en verið hollvinur þess og er nú að vinna að útgáfu rits um það. Mynd/Úr einkasafni „
Kvenfélag Þistilfjarðar var stofnað á Svalbarði á jóladag árið 1915. Það er því hundrað ára en síungt og heldur uppi kraftmiklu starfi,“ segir Kristín Sigfúsdóttir, menntaskólakennari á Akureyri. „Ég hef verið að skoða fundargerðarbækur kvenfélagsins frá upphafi því við ætlum að gefa út nett rit um sögu þess og þar sést glögglega hvaða stoð það hefur verið fyrir samfélagið. Drifkraftur í skemmtanalífi sveitarinnar, góðgerðastofnun og félagsþjónusta – allt í senn.“ Kristín ólst upp á Gunnarsstöðum í Þistilfirði en flutti það ung að heiman að hún gekk aldrei í kvenfélagið, heldur hefur verið hollvinur þess og oft sótt samkomur sem það hefur haldið. „Mamma, Sigríður Jóhannesdóttir, bar hag kvenfélagsins mjög fyrir brjósti, hún sagði að það mætti aldrei hætta að endurnýja sig og fylgjast með tímanum – og það hafa orðið áhrínsorð. Ungu konurnar ganga í félagið og samlagast ágætlega þeim eldri og reyndari. Það er alltaf létt yfir fundum, ótal námskeið eru haldin og farið í ferðalög, jafnvel til útlanda. Árviss jólavaka var haldin nú á aðventunni og farið í skemmtilega heimsókn til íbúa á Dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn, sungið með þeim og dansað. Formaður félagsins er Bjarnveig Skaftfeld á Ytra-Álandi.“ Kristín segir Kvenfélag Þistilfjarðar hafa lagt mörgum góðum málefnum lið í gegnum tíðina, bæði í heimabyggð og á landsvísu. Meðal þess sem hún rakst á í fundargerðabók er að það hafi lagt fé til húsnæðis sem byggt var við Arnarhvol fyrir heimilislausar konur í Reykjavík árið 1925 og stutt við skólabóka- og fatakaup ef aðstæður voru bágar á bæjum í sveitinni. Nú er afmælisfagnaður framundan á Svalbarði í Þistilfirði á þriðja í jólum, veisla og dagskrá, meðal annars söngleikur sem sveitungunum er boðið til. „Á eftir er svo dansleikur og þar skemmta allir aldurshópar sér saman,“ segir Kristín.
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“