Það á einnig við um þann nýjasta úr þeirra smiðju sem fengið hefur nafnið Aircross. Þessi bíll verður sýndur á bílasýningunni í Shanghai sem hefst seinna í þessum mánuði. Aircross virðist við fyrstu sýn erfa ýmislegt úr hönnun C4 Cactus bílsins og eru allar línur hans fremur bólgnar.
Ekki er bíllinn venjulegri að innan en þar miðast allt við þægindi farþega. Sætin eru eins og sófar, leðurklæðning þeirra hvít með appelsínugulum höfuðpúðum. Í mælaborðinu eru tveir 12 tommu skjáir og má taka annan þeirra úr mælaborðinu og stýra aðgerðum á honum lausum. Í öllum sætum bílsins eru hátalarar og hljómurinn í bílnum er að sögn Citroën mjög góður.
Aircross er á stærð við Audi Q5. Hann er á 22 tommu felgum og á Continental dekkjum. Bíllinn er tvinntengilbíll með 1,6 lítra bensínvél með forþjöppu sem orkar 218 hestöfl, auk 95 hestafla rafmótora. Þessi öfluga drifrás kemur bílnum á 100 km hraða á 4,5 sekúndum, en það er á við sprækan sportbíl. Svo er bara að vona að þessi bíll komist í gegnum hugmyndastigið og í fjöldaframleiðslu. Það gæti skýrst af viðtökunum í Shanghai.
