Vill sjá stuðning í verki Gunnar Leó Pálsson skrifar 17. desember 2015 10:00 Emmsjé Gauti ætlar að styðja börn flóttamanna með því að koma fram á tónleikunum í kvöld. vísir/pjetur „
Ég held þetta sé nítjánda árið okkar, annars erum við ekkert góðir að muna svona tölur,“ segir Þorkell Máni Pétursson útvarpsmaður á X-977, sem er einn af skipuleggjendum hinna árlegu Xmas tónleika sem fram fara í Hlégarði í Mosfellsbæ í kvöld. Allur ágóðinn af tónleikunum rennur í nýjan tómstundasjóð Rauða krossins sem notaður verður til styrktar börnum flóttafólks. „Við höfum alltaf styrkt gott málefni og ágóðinn rennur óskiptur í tómstundasjóðinn til styrktar börnum flóttafólks. Þetta málefni er mjög viðkvæmt um þessar mundir og við viljum að þessir flóttamenn aðlagist samfélaginu og viljum aðstoða þá eins og við getum. Fólk hefur verið duglegt við að styðja flóttamenn á samfélagsmiðlun og nú er komið að því að styðja þá í verki þannig að ég býst við að fólk kaupi sér miða,“ segir Máni.Frosti Logason og Máni Pétursson, útvarpsmenn á X-inu 977.VisirÁ tónleikunum koma fram nokkrir af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar en það eru Dimma, Emmsjé Gauti, Júníus Meyvant, Kiriyama Family, Axel Flóvent, Markús & The Diversion Sessions, Himbrimi, Rythmatik, Kontinuum og VIO sem koma fram. Tónleikarnir fara fram í Hlégarði sem er talið vera eitt glæsilegasta tónleikahús landsins. „Við ætlum að prófa að vera í Mosó. Þetta er alveg geggjað hús og við viljum líka með þessu draga fólkið úr bænum og látunum og leyfa því að njóta sín í Mosó,“ bætir Máni við. Húsið er opnað kl. 19.30 og hefjast tónleikarnir kl. 20.00. Miðasala fer fram á miði.is og kostar hver miði 977 krónur.
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“