Dularfullir tónleikar grímuklæddra Ólöf Skaftadóttir skrifar 19. desember 2015 11:30 Shades of Reykjavik, DJ Flugvél og Geimskip og Shades of Reykjavík. Fréttablaðið/Ernir
Jólatónleikar DJ Flugvélar og geimskip, Shades of Reykjavík og Vaginaboys verða haldnir á Húrra klukkan níu í kvöld. Þeir eru þó ekki með hefðbundnu sniði, enda engin kammersveit að sögn Steinunnar Harðardóttur, betur þekktrar sem DJ Flugvél og geimskip. „Ég þekki strákana ekki neitt, en ég og vinir mínir hlustum alltaf á þáttinn hjá Shades of Reykjavík í partíum og svona. Þannig að ég var ekki lengi að hugsa mig um,“ segir Steinunn. Shades of Reykjavík er fjöllistahópur, stofnaður árið 2011. Hópurinn samanstendur af röppurum, tónlistarmönnum, leikstjórum og skeiturum sem sameinast í tónlist og öðrum listformum, en halda úti vinsælum útvarpsþætti á FM Xtra. Umsjónarmenn þáttarins eru Prins Puffin og Elli Grill, sem hafa gert garðinn frægan með rapptónlist og útvarpsmennsku. Steinunn kemur með leynigest. En hversu mikið vill hún gefa upp um gestinn? „Þetta eru jólatónleikar, þannig að ég verð auðvitað að vera með leynigest. Ég veit ekki alveg hversu mikið ég get sagt án þess að gefa það upp hreinlega, en við getum orðað það sem svo að ég og leynigesturinn munum pottþétt koma öllum í jólaskap.“ Tónleikarnir í kvöld eru einkar dularfullir, því auk leynigestarins spilar elektrósveitin The Vaginaboys. Sveitin er þekkt fyrir að klæðast grímum þegar þeir koma fram. Þeir vilja ekki þekkjast. Grímurnar segja þeir tilkomnar vegna þess að þeir séu ekki í tónlist til þess að verða frægir – heldur af ástríðu.
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Fundu ástina á Domino's Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“