Leyna bágum aðstæðum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 2. desember 2015 09:30 Farið verður með allar umsóknir í Friðrikssjóð sem trúnaðarmál að sögn Þorgríms Þráinssonar, eins stjórnarmanns af þremur. Vísir/Anton Brink „
Hlutverk sjóðsins er að tryggja að allir núverandi og framtíðariðkendur hjá Val geti staðið straum af þeim kostnaði sem fylgir því að stunda íþróttir í Val,“ segir Þorgrímur Þráinsson um nýjan styrktarsjóð. Sá hefur hlotið nafnið Friðrikssjóður í höfuðið á séra Friðriki Friðrikssyni, stofnanda Vals. „Það er miklu meiri þörf fyrir svona sjóð en við gerum okkur almennt grein fyrir,“ segir Þorgrímur sem er einn þeirra þriggja sem skipa stjórn. „Ég hef alveg heyrt af krökkum sem segjast ekki hafa áhuga á að stunda íþróttir bara til að vernda mömmu og pabba sem hafa ekki efni á að borga æfingagjöld. Þess vegna finnst mér þetta frábært framtak hjá Val og í anda séra Friðriks. Ég vona að sem flest íþróttafélög á landinu taki upp eitthvert sambærilegt fyrirkomulag því öll börn eiga að hafa sama rétt. Því miður hefur ástandið verið þannig að einstaka foreldri eða forráðamaður iðkenda í Val hefur ekki haft tök á því að greiða æfingagjöld og hefur sá kostnaður yfirleitt verið afskrifaður af félaginu eða samið um aðrar greiðslur.“ Skipulagsskrá og úthlutunarreglur sjóðsins ásamt umsóknareyðublaði er hægt að nálgast á heimasíðu Vals undir hlekknum Friðrikssjóður. Stofnfé sjóðsins er sjálfsaflafé og búið er að tryggja fjármögnun sjóðsins í þrjú ár hið minnsta. Þorgrímur segir stjórn sjóðsins meta umsóknir og greinargerðir frá foreldrum eða forráðamönnum barna einu sinni á ári eða oftar og segir allar slíkar umsóknir trúnaðarmál.
Mest lesið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Í jólaskapi í júní Menning Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Lífið Fleiri fréttir Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Sjá meira