Afmá glansmyndir Instagram og Facebook af móðurhlutverkinu Guðrún Ansnes skrifar 7. desember 2015 10:00 Hér sjást frumkvöðlarnir saman með framlengingarnar sínar, sem tengja þær saman á þann hátt sem raun ber vitni.
Okkur langar að taka þessa glansmynd aðeins út úr myndinni,“ segir Sólrún Lilja Diego, ein þeirra fimm ungu mæðra sem hrintu af stað vefsíðunni mamie.is, þar sem þær leggja markvisst upp úr að gera ungum mæðrum kleift að finna svör við spurningum sem kunna að vakna. Auk Sólrúnar eru það Lena Björk Dam, Lísa Rún Kjartansdóttir, Júlíana Birgisdóttir og Saga Ýr Kjartansdóttir sem sjá um að upplýsa ungar mæður um allt milli himins og jarðar. „Þetta byrjaði í raun þannig að Lena heyrði í mér, en hún var í þeim sporum að hún var ófrísk, en enginn annar í kringum hana var á svipuðum stað svo hana sárvantaði upplýsingar,“ útskýrir Sólrún og heldur áfram: „Í fyrstu leist mér ekkert á þetta en svo fór ég að spá aðeins í þessu, enda vel þeginn félagsskapur þegar maður er í fæðingarorlofi.“ Sem kom á daginn, því Sólrún hefur verið ansi iðin við að nýta sér tímann þegar dóttir hennar, Maísól, sefur. „Ég ætlaði eiginlega ekkert að skrifa en hef svo eiginlega endað á að skrifa mest,“ segir hún og skellir upp úr. Segir Sólrún viðtökurnar vera með ólíkindum og að þær stöllur hefðu engan veginn gert sér í hugarlund hversu mikið erindi síðan átti í raun við ungar mæður. „Við fengum yfir þrettán hundruð heimsóknir á einum sólarhring, en við settum síðuna í loftið seinni part laugardags og varð algjör sprenging,“ bendir hún á. Greinilegt er því að eitthvað vantar upp á í upplýsingagjöf til ungra frumbyrja ef marka má þær spurningar og aðsókn sem Mamie hefur fengið. „Flestar ungar mæður eru vissulega í svokölluðum bumbuhópum, en ég verð að segja að þær upplýsingar sem þar koma fram eru ekkert alltaf þær sem maður er að leita eftir, og svörin oft ansi misjöfn, sem þýðir að erfitt getur verið að taka mark á þeim,“ bendir Sólrún á. „Ég fékk til að mynda heilmikið af fyrirspurnum um hvernig ég undirbjó Maísól út í vagn að sofa, þar sem þó nokkrar mæður vissu ekkert um hvernig best væri að haga því í kólnandi veðri. Eitthvað sem eflaust einhverjum finnst auðsvarað, en það er ekki svo sjálfsögð vitneskja fyrir aðrar.“ Sólrún segir Snapchat-reikning Mamie sömuleiðis hafa notið mikilla vinsælda, og þar séu þær að fá fjölmargar fyrirspurnir úr öllum áttum, og það auðveldi ef til vill aðgengi ungu mæðranna að hinum ýmsu upplýsingum. „Ég viðurkenni fúslega að mér þótti frekar skrýtið að byrja að taka af okkur mæðgum snapp alla daga, enda hafði ég fram að því ekki verið mikill snappari,“ segir Sólrún og bætir við að þó hafi það komist furðu fljótt upp í vana og nú snappi hún eins og vindurinn fyrir þá fimmtán hundruð sem þegar hafa stokkið á vagninn. „Ætli ég hafi ekki fundið mest fyrir þessu þegar ég fór með vinkonu minni í Smáralind og hún fór að spyrja hvort ég væri ekkert að hugsa um hver þarna hefði verið að horfa á snappið frá mér þann morguninn,“ skýtur hún að og skellihlær. Sólrún segir stelpurnar gríðarlega ólíkar, en hópurinn þekktist svo gott sem ekkert áður en samstarf hófst. Eiga þær í raun býsna fátt sameiginlegt annað en að vera nýbakaðar mæður sem allar hafi verið í námi áður en afsprengin létu til sín taka, en þó geta þær sammælst um að glansinn sem sjáist svo iðulega á Facebook og Instagram megi alveg missa sín. „Við erum að sýna raunveruleg barnaherbergi og koma með alvöru sniðugar hugmyndir. Þau eiga ekkert að vera æðislega geggjuð og eins og klippt út úr tískublöðum. Við erum ekki að einblína á það sem er flottast og fínast, það er nóg af síðum sem gera það.“
Mest lesið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Lífið „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Tíska og hönnun Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Lífið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Fleiri fréttir „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Sjá meira