„Nógu mikil refsing að þurfa að lifa með svona fáfræði“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. nóvember 2015 15:34 Trausti Þór segist hafa fyrirgefið manninum sem hótaði honum. skjáskot „
Hann hótaði að berja mig, einfaldlega af því að ég fæddist,“ segir Selfyssingurinn Trausti Þór. Í myndbandi sem Trausti birti á Facebook segir hann frá því þegar hann var ásamt vinkonum sínum á leið heim frá skemmtistaðnum Fróni á Selfossi þegar maður, sem hann þekkti lítið til, vatt sér upp að honum. „Hann sér naglalakk. Svo byrjar hann að drulla yfir mig og segja hvað þetta sé ógeðslegt og spurði hvort ég væri hommi. Ég sagði já enda er ég samkynhneigður. Þá fór hann að segja að ef við værum í heimalandi hans þá myndi hann bókstaflega myrða mig. Þetta var hræðilegt. Hann hótaði að hringja í fólk og fá það til að berja mig.“ Trausti segist ekki hafa orðið fyrir svipuðum hótunum áður en að þær viðgangist þó víða – og greinilega líka hér á landi.Fordómar eru til allstaðar en ef við stöndum öll saman þá hafa þeir ekkert á okkur. Endilega deilið, langar að hjálpa eins mörgum og ég get. ❤️ getið talað við mig hér, eða addað mér á snapchat: trausti97 ❤️ Viktoría Sól Jóhannsdóttir Sigríður Hulda Stefansdóttir Cristina Andrea Waldos Þóra Björg Þórðardóttir Dagný Ósk Hafsteinsdóttir Dmitry Grabyuk Ósk Tryggvadóttir Ásta Petrea Hannesdóttir Tinna Rut HannesdóttirPosted by Trausti Þór on Friday, 20 November 2015„Mér líður bara ömurlega að þetta sé að gerast í heiminum. Þetta er að gerast á hverjum degi fyrir fólk,“ segir Trausti. „Svo heyrði ég frá einstaklingi að ég ætti að virða það að hann væri alinn upp við þetta, sem er bara matröð. Fólk er að kenna börnunum sínum þetta, að þetta sé rétta leiðin; ofbeldi og hatur sé einhver leið til að lifa. Ef maður hefur þessar skoðanir, að þeir séu á móti mér, þá er mér alveg sama. Svo lengi sem þeir halda þeim með sjálfum sér,“ segir Trausti, Í myndbandinu þakkar hann vinum sínum fyrir stuðninginn og hvetur alla þá sem kunna að verða fyrir svipuðum hótunum að tala við einhvern. „Ég er bara segja að fólk sem er að lenda í þessu daglega, fólki sem líður illa, að það besta sem þið getið gert er að tala við einhvern. Þið haldið kannski að þið hafið engann til að tala við en það er alltaf einhver,“ segir Trausti. Hann segist hafa fyrirgefið manninum. „Ég veit að það eru margir sem eru að hóta að berja hann og meiða hann. Ég hef heyrt að hann þori ekki lengur í skólann. Ég held að það sé best að láta hann vera því það er nógu mikil refsing að þurfa að lifa með svona fáfræði.“
Mest lesið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Anthony Head er látinn Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Lífið samstarf Fleiri fréttir Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Sjá meira