Mér er Reykjalundur afar kær Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 24. nóvember 2015 14:30 "Ég legg þessu málefni lið með mikilli gleði og stóru hjarta,“ segir Þórunn Lárusdóttir söngkona um styrktartónleika vegna Reykjalundar. Fréttablaðið/GVA Vísir/GVA
Mér er Reykjalundur afar kær á svo margan hátt. Ég er alin upp í Mosfellsbæ og Reykjalundur hefur alltaf verið hluti af mínu lífi. Þar var til dæmis heilsugæslan svo þangað fór ég sem barn að láta kíkja í eyrun á mér,“ segir Þórunn Lárusdóttir, söng- og leikkona. Hún er ein þeirra listamanna sem koma fram á styrktartónleikum sem Hollvinasamtök Reykjalundar standa fyrir í kvöld klukkan 20 í Grafarvogskirkju í tilefni af 70 ára afmæli stofnunarinnar. Þórunn kveðst eiga margar minningar tengdar Reykjalundi. „Móðir mín, Sigríður Þorvaldsdóttir, var á Reykjalundi um tíma eftir að hún veiktist, hún fékk heilablæðingu og þurfti mikillar endurhæfingar við. Faðir minn, Lárus Sveinsson trompetleikari, æfði Reykjalundarkórinn um tíma og á Reykjalundi sá ég föður minn síðast á lífi. Þannig að staðurinn tengist mér persónulega sterkum böndum og ég legg honum lið með mikilli gleði og stóru hjarta.“ Innt eftir lagavalinu í kvöld svarar Þórunn: „Ég er að spá í að flytja Litla tónlistarmanninn sem er mér mjög kært lag. Svo ætla ég að þykjast kunna frönsku í smástund og enda á Kabarett. Kjartan Valdimarsson spilar með mér eins og fleirum á þessum tónleikum. Hann er Mosfellingur eins og við Diddú og kannski fleiri sem koma þarna fram.“ Tónleikarnir verða eflaust hinir glæsilegustu. Auk þeirra Þórunnar og Diddúar koma þar fram þeir Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson, Hilmar Örn Agnarsson og kórar, Vala Guðnadóttir og Þór Breiðfjörð, Karlakór Reykjavíkur, Páll Óskar og Monika, Gunnar Þórðarson, Bubbi Morthens og Egill Ólafsson. Kynnir kvöldsins verður Þorsteinn Guðmundsson leikari.
Mest lesið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Anthony Head er látinn Lífið James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Lífið samstarf Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Fleiri fréttir Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Sjá meira