Sigvaldi Kaldalóns og músafjölskylda í Súðavík Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 17. nóvember 2015 10:15 Thelma lætur sér ekkert óviðkomandi sem fellur undir vestfirska list og menningu. Mynd/Úr einkasafni „
Við höfum gert róttækar breytingar á ritinu, breytt stefnu þess og fjölgað útgáfudögum,“ segir Thelma Hjaltadóttir, ritstjóri tímaritsins List á Vestfjörðum sem nú er nýkomið út í breyttri mynd. Hún segir blaðinu dreift frítt í hvert hús á Vestfjörðum. En um hvað er hún að skrifa? „Bara til að nefna einhver dæmi sem lýsa breiddinni þá er sagt frá leikriti sem nýbúið er að frumsýna á Ströndum, það kallast Draugasaga og er eftir Strandamann. Við segjum frá sjónvarpsþáttum sem byggðir eru á sögu Sigvalda Kaldalóns, læknis og tónskálds í Ísafjarðardjúpi á öndverðri síðustu öld sem kvikmyndafélagið Í einni sæng er með í smíðum. Svo er tónlistarmaðurinn Skundi að gefa út hljóðbók um músafjölskyldu í Súðavík og henni gefum við gaum. Við erum með viðtal við Ragnheiði Gröndal söngkonu og Fjallabræður segja skondna sögu í kringum nafngift nýja disksins þeirra. Svona mætti lengi telja.“ List á Vestfjörðum er gefið út af félagi vestfirskra listamanna og stjórnin er jafnframt í ritnefnd. „Þetta er fyrsta blaðið sem ég ritstýri,“ segir Thelma sem um árabil starfaði sem blaðamaður á BB. Ritinu er dreift frítt í hvert hús í fjórðungnum og einnig er það komið inn á netið. Slóðin er: http://issuu.com/gunnibje/docs/lav_2015-2016_umbort_issuKápan á hinu nýútkomna riti.Fram að þessu hefur ritið List á Vestfjörðum verið gefið út einu sinni á ári og þá í annálsstíl en nú er það í fréttastíl og á að koma út þrisvar yfir árið, að sögn Thelmu. Hún segir allan Vestfjarðakjálkann undir og allt efni sem fellur undir menningu og biðlar til listamanna og annarra velunnara listarinnar á svæðinu að vera duglegir við að senda henni efni og ábendingar. „Blaðið leggur áherslu á það sem er að gerast á hverjum árstíma fyrir sig. Tilgangurinn er auðvitað að vekja athygli á hversu fjölbreytt og auðug menningarflóran er hér fyrir vestan.“
Mest lesið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Anthony Head er látinn Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Fleiri fréttir Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Sjá meira