Matur

Sænskar kjötbollur með öllu tilheyrandi

Eva Laufey Kjaran skrifar
vísir
Sænskar kjötbollur í brúnni sósu



Sænskar kjötbollur

Smjör eða ólífuolía

1 stór laukur

2 msk smátt söxuð steinselja

500 g svínahakk

500 g nautahakk

3 msk sýrður rjómi

1 egg

3 – 4 msk brauðrasp

salt og nýmalaður pipar

Aðferð: Hitið smjör eða ólífuolíu á pönnu, steikið laukinn í smá stund eða þar til hann fer að mýkjast. Saxið niður steinselju og bætið út á pönnuna.

Blandið öllum hráefnum saman í skál og mótið litlar bollur úr hakkblöndunni.

Steikið bollurnar á pönnu, snúið reglulega og leggið í eldfast mót. Klárið að elda bollurnar í ofni við 180°C í 10 – 15 mínútur.

Berið bollurnar fram með kartöflum, brúnni sósu, góðri sultu og súrum agúrkum.

Brauðrasp

4 brauðsneiðar

ólífuolía

salt og pipar

Aðferð: Hitið ofninn í 200°C. Leggið brauðsneiðarnar á pappírsklædda ofnplötu og sáldrið ólífuolíu yfir brauðið, kryddið til með salti og pipar. Bakið í ofni við 200 C í nokkrar mínútur eða þar til brauðið er orðið stökkt og gullinbrúnt.

Setjið brauðið í matvinnsluvél og maukið þar til það verður að fínu brauðraspi.

Brún og gómsæt sósa

300 ml rjómi eða matreiðslurjómi

1 dl kjúklingasoð

3 msk sýrður rjómi

1 tsk góð berjasulta

salt og pipar

1 msk smátt söxuð steinselja

sósuþykkjari, magn eftir smekk

Aðferð: Blandið öllum hráefnum saman í pott og náið upp suðu. Leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur.

Kryddið til með salti og pipar. Gott er að saxa niður ferska steinselju og sáldra yfir sósuna rétt í lokin.

Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2. 


Tengdar fréttir

Hvítlauksmarinerað lambalæri með Bernaise sósu

Í síðasta þætti af Matargleði var sunnudagur til sælu tekinn alla leið. Franskt eggjabrauð, ístertan hennar ömmu og auðvitað sunnudags lambalærið í hvítlauksmarineringu með ómótstæðilegri Bernaise sósu frá grunni.

Ómótstæðilegt Mac and cheese

Í síðasta þætti af Matargleði útbjó Eva ómótstæðilegt Mac and Cheese með beikoni í ljúffengri rjómasósu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×