Bílar

BMW, Benz og Opel gætu einnig verið sek um dísilvélasvindl

Finnur Thorlacius skrifar
Fer þessum dælum kannski brátt fækkandi í ljósi þeirra umhverfisvár sem fylgir dísilbílum.
Fer þessum dælum kannski brátt fækkandi í ljósi þeirra umhverfisvár sem fylgir dísilbílum.
Automotive News greinir frá því að European Federation for Transport and Environment hafi sent frá sér skýrslu fyrr í þessum mánuði, áður en upp komst um dísilvélasvindl Volkswagen, þar sem sagt er frá því að BMW, Benz og Opel séu á meðal bílaframleiðenda sem gætu verið uppvís um dísilvélasvindl. Dísilvélar þessara framleiðenda séu semsagt með samskonar hugbúnað og í bílum Volkswagen.

Þessi skýrsla hefur engu að síður farið framhjá flestum. Upplýsingarnar fékk European Federation for Transport and Environment frá International Council on Clean Transportation og víst má telja að ekki hafi verið greint frá þessu í skýrslunni ef engar sannanir séu fyrir hendi.

Því gæti þetta dísilvélasvindl aldeilis undið uppá sig og ef til vill eru flestir bílaframleiðendur sekir um einmitt það sama og Volkswagen. Næstu vikur munu væntanlega leiða það í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×