Glamour

Tískuvikan í New York: Skreytingar Givenchy

Ritstjórn skrifar
Svakalegt andlitsskraut.
Svakalegt andlitsskraut. Glamour/Getty
Tískuhúsið Givenchy með Riccardo Tisci í fararbroddi þreytti frumraun sína á tískuvikunni í New York um helgina. 

Óhætt er að segja að sýningin hafi slegið í gegn og var fremsta röðin í stjörnumprýdd. Sýningin var að hluti til utandyra þar sem New York borg naut sín vel í takt við falleg klæði. 

Línan var kvenleg þar sem silki, blúnda, perlur og bróderingar voru í lykilhlutverki. Víðar skálmar við þrönga toppa og kjólar sem munu sóma sér vel á rauða dreglinum. Andlitsskrautið sem stal senunni í byrjun árs hjá franska tískuhúsinu lét sig ekki vanta í ár á pöllunum. 

Hér kemur brot af því besta frá Givenchy: 

Glamour/Getty
Kendall Jenner





×