Fox kaupir ráðandi hlut í National Geographic Sæunn Gísladóttir skrifar 9. september 2015 15:30 Rupert Murdoch er eigandi 21st Century Fox. Vísir/AFP
Fjölmiðlarisinn 21st Century Fox, sem er í eigu milljarðarmæringsins Rupert Murdoch hefur keypt ráðandi hlut í fjölmiðladeild National Geographic. Samningurinn er metinn á 725 milljónir dollara. Fox hefur átt í samstarfi við National Geographic í 18 ár og hafa þá séð um sjónvarpsstöðvar þess. Með nýja samningnum verður hins vegar til samstæðan National Geographic Partners sem mun eiga og reka alla fjölmiðladeild National Geographic, meðal annars tímarit þess, bækur, barnaefni og vefverslun. Fox mun eiga 73% hlut í fyrirtækinu en National Geographic Society, sem er góðgerðarfélag mun eiga 27% og halda áfram að fjármagna vísindarannsóknir. Talið er að samningurinn verði fullgildur í lok árs.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira