Windows 10 komið út: Start hnappurinn snýr aftur kolbeinn tumi daðason skrifar 29. júlí 2015 10:35 Windows 10 mun líta svona út á tölvum notenda.
Nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 10, kemur út í dag og er dreift á netinu ókeypis næsta árið. Tilkynnt var um útgáfu stýrikerfisins í september síðastliðnum og hafa margir í tæknigeiranum beðið spenntir síðan. Meðal nýjunga í Windows 10 er að Start-hnappurinn kemur aftur, nýr vafri í stað Internet Explorer, Hello öryggiskerfi og hraðvirkara stýrikerfi. Þá getur Windows 10 keyrt smáforrit fyrir Android og iOS. Aðeins mun takmarkað magn tölva fá uppfærsluna í júlí en flestir geta uppfært í ágúst. „Það tekur Microsoft einhvern tíma að senda öllum uppfærslu enda eru þeir að uppfæra um 500 milljón tölvur,” segir í bloggi Björns G. Birgissonar vörustjóra PC búnaðar hjá Nýherja. Þar er að finna helstu upplýsingar um hvernig notendur geta uppfært stýrikerfið sitt og hvaða kröfur séu gerðar til uppfærslu. Stýrikerfið hefur fengið nokkuð góða dóma og segir gagnrýnandi Guardian að nýjasta útgáfan sé líklega sú besta sem Microsoft hafi sent frá sér. Gagnrýnandinn veltir þó fyrir sér hvort tilefni sé til að uppfæra kerfið strax eða bíða aðeins og sjá til í ljósi slæmrar reynslu af Windows 8 þar sem margir söknuðu meðal annars Start-hnappsins.
Tengdar fréttir Windows 10 getur keyrt smáforrit fyrir Android og iOS Microsoft er mikið í mun um að fjölga smáforritum sem notendur síma og tölva þeirra geta notað. 29. apríl 2015 22:11 Microsoft skiptir Internet Explorer út fyrir nýjan vafra Nýi vafrinn gengur undir vinnuheitinu Spartan og mun að mörgu leyti líkjast öðrum vinsælum vöfrum líkt og Chrome og Firefox. 30. desember 2014 14:52 Notendur Windows fá fría uppfærslu Tæknirisinn Microsoft kynnti í gær nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins, Windows 10. 22. janúar 2015 20:26 Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira
Windows 10 getur keyrt smáforrit fyrir Android og iOS Microsoft er mikið í mun um að fjölga smáforritum sem notendur síma og tölva þeirra geta notað. 29. apríl 2015 22:11
Microsoft skiptir Internet Explorer út fyrir nýjan vafra Nýi vafrinn gengur undir vinnuheitinu Spartan og mun að mörgu leyti líkjast öðrum vinsælum vöfrum líkt og Chrome og Firefox. 30. desember 2014 14:52
Notendur Windows fá fría uppfærslu Tæknirisinn Microsoft kynnti í gær nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins, Windows 10. 22. janúar 2015 20:26