Glamour

Katy Perry nýtt andlit H&M

Ritstjórn skrifar
Katy Perry
Katy Perry Glamour/Getty
Söngkonan Katy Perry er nýtt andlit sænska verslanarisans Hennes & Mauritz og mun augýsa fatalínu fyrirtækisins sem kemur út um næstu jól. 

Perry setti þessa mynd hér fyrir neðan á Instagram þegar hún tilkynnti fréttirnar og lýsti yfir ánægju sinni með H&M. "H&M er sú búð þar sem ég byrjaði að þróa minn persónulega stíl," segir Perry í tilkynningunni "Ég versla ennþá þar og blanda flíkum frá H&M saman við önnur merki."

Perry fetar þar með í fótspor frá Beyoncé, Lady Gaga og Gisele sem allar hafa verið andlit verslanarisans. 



Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - ekki gleyma að tryggja þér eintak!

Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.






×