Viðskipti erlent

Virkjun heimiluð í friðlýstri laxveiðiá

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá Raundalsá á Hörðalandi. Vatnasvið hennar var friðlýst árið 1986.
Frá Raundalsá á Hörðalandi. Vatnasvið hennar var friðlýst árið 1986.
Ríkisstjórn Noregs hefur veitt heimild til virkjanaframkvæmda í Raundalselva, sem er friðlýst laxveiðiá á Hörðalandi norðaustur af Bergen, milli Sognfjarðar og Harðangursfjarðar. Í frétt á vef NRK, norska ríkisútvarpsins, kemur fram að Vatna- og orkustofnun Noregs hafi lagst gegn því að lítil virkjun, sem þar var fyrir, yrði nífölduð að stærð en olíu- og orkumálaráðuneytið hafi samþykkt framkvæmdirnar.

Virkjunin er við Palmafoss en áformað er að hún verði stækkuð og raforkuframleiðslan aukin úr 1,8 gígavattstundum á ári upp í 16,3 gígavattstundir. Það þýðir að mun stærri hluti af rennsli árinnar verður virkjaður. NRK segir óvenjulegt að ráðuneyti samþykki framkvæmdir sem undirstofnun hafi hafnað.

Gamla virkjunin við Palmafoss er frá árinu 1919.Mynd/Voss Energi.
Umhverfisdeild fylkismannsins á Hörðalandi hafði þó minni efasemdir um virkjunina en Vatna– og orkustofnunin, þrátt fyrir að vatnasviðið væri friðlýst og laxastofn árinnar talinn viðkvæmur. Þar segjast menn sáttir við þær varnir sem orkufyrirtækið Voss Energi hyggst beita til að hindra að laxinn lendi í túrbínum virkjunarinnar. 

Ráðuneytið segir virkjunarleyfið meðal annars byggt á yfirlýsingum bæði Fylkismannsins og Umhverfisstofnunar Noregs um að skilyrði laxastofnsins í ánni muni ekki versna.  Svæðið væri auk þess þegar raskað og minna rennsli á fossinum gæti auðveldað laxagöngur. 

Ný orkulög, sem hin rauðgræna ríkisstjórn Stoltenbergs setti fyrir fjórum árum, um svokölluð græn orkuskírteini, hafa hleypt miklum krafti í virkjanaframkvæmdir í landinu. Þau niðurgreiða endurnýjanlega orkugjafa og samkvæmt úttekt þarlends háskóla í fyrra eru uppi áform um að virkja tuttugu teravattstundir til viðbótar í Noregi á næstu árum. Það er næstum tvöfalt meira vatnsafl en búið er virkja á Íslandi.


Tengdar fréttir

Engin mótmæli gegn nýjustu stíflu Noregs

Ný virkjun sem verið er að taka í notkun í Noregi þessa dagana er með stærstu stíflu sinnar tegundar sem reist hefur verið þar í landi frá því hin umdeilda Alta-virkjun var gangsett fyrir þrjátíu árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×