Ný Opel Corsa kemur í ljós um helgina Finnur Thorlacius skrifar 5. mars 2015 13:27 Opelm Corsa af nýrri fimmtu kynslóð. Selst hafa alls 12,3 milljónir af fjórum eldri kynslóðum hans.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Bílabúð Benna verður ný Corsa frumsýnd, laugardaginn 7. mars, í Reykjavík og í Reykjanesbæ. Nýja Corsan frá Opel er afar sportlegur fimm manna bíll sem kemur á óvart fyrir óvenju fullkominn tækni- og öryggisbúnað, ferska hönnun, sprækar vélar, sparneytni og frábært verð. Opel merkið hefur verið á mikilli uppleið í Evrópu og hlotið ótal hönnunar- og gæðaverðlaun að undanförnu. Metnaður Opel er gríðarlegur og er 4 milljarða evra fjárfesting fyrirtækisins í þróun á nýjum bílgerðum til marks um það. Það þýðir að fram til ársins 2018 gerir fyrirtækið ráð fyrir að kynna eina 27 nýja bíla og 17 nýjar bílvélar. Afraksturinn er að skila sér, jafnt og þétt, og nú er komið að fimmtu kynslóðinni af Corsa. Mikil eftirvænting hefur ríkt fyrir komu hans, enda ein mest selda einstaka bílgerðin sem framleidd hefur verið í Evrópu, með 12.3 milljón eintök seld frá markaðssetningu hans árið 1982. Nýi bíllinn hefur greinilega staðið undir væntingum jafnt gagnrýnenda sem neytenda, en nú í desember, aðeins þremur mánuðum eftir frumsýningu hans í Frankfurt, höfðu borist yfir 55 þúsund pantanir. Samkvæmt upplýsingum Björns Ragnarssonar, framkvæmdastjóra Bílasviðs hjá Bílabúð Benna, fer Corsa frumsýningin fram í Reykjavík laugardaginn 7. mars og sunnudaginn 8. mars og í Reykjanesbæ á laugardeginum og eru allir hjartanlega velkomnir.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent