Raunverulegir peningar settir í ný Monopoly spil Samúel Karl Ólason skrifar 3. febrúar 2015 13:30 Vísir/AFP
Framleiðendur borðspilsins Monopoly fagna 80 ára afmæli spilsins með því að skipta út gerviseðlum, fyrir raunverulegar evrur. Það hefur verið gert í 80 spilum og einn heppinn kaupandi gæti fundið rúmar þrjár milljónir króna í spilinu sínu. Fyrirtækið Hasbro, sem framleiðir spilið, skipti út seðlum í 80 spilum af um 30 þúsund. Í flestum spilunum er einungis nokkrum seðlum skipt út fyrir raunverulega peninga og kom hugmyndin upprunalega frá spilurunum sjálfum. Þetta kemur fram á vef Independent. Í einu spilinu hefur öllum seðlunum verið skipt út fyrir raunverulegar evrur. Í heildina samsvarar það 20.580 evrum eða rúmum þremur milljónum króna. Spilunum var pakkað með mikilli leynd og reynt var að ganga úr skugga um að kassarnir litu alveg eins út og venjulega. Framkvæmdastjóri Hasbro segir Guardian að þrátt fyrir það hafi smávægileg bunga myndast á kassanum þar sem öllum peningunum var skipt út. Þá er þyngdarmunurinn nánast enginn.
Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira