Nýr jepplingur Volkswagen Finnur Thorlacius skrifar 12. janúar 2015 10:52 Volkswagen Cross Coupe GTE.
Volkswagen sýnir nýjan jeppling á bílasýningu sem stendur nú yfir í Detroit í Bandaríkjunum. Þessi jepplingur á einmitt að spila stórt hlutverk í Bandaríkjunum og verður framleiddur í verksmiðju Volkswagen í Chattanooga í Tennessee. Jepplingurinn hefur fengið vinnuheitið Cross Coupe GTE Concept. Útlit bílsins er líkt og sambræðingur af CrossBlue jeppanum, sem sýndur var í Detroit árið 2013, og CrossBlue Coupe bílsins sem Volkswagen sýndi í Shanghai sama ár. Volkswagen hefur átt í erfiðleikum með sölu bíla sinna í Bandaríkjunum að undanförnu og söluminnkun varð þar hjá Volkswagen í fyrra þrátt fyrir talsverða heildaraukningu í bílasölu þarlendis. Svo virðist sem Volkswagen hafi að undaförnu ekki haft í boði réttu bílana til að freista Bandaríkjamanna, en tilkoma CrossBlue jeppans og nýs jepplings gæti breytt því. Cross Coupe GTE er enginn meðal jepplingur en drifrás hans er 355 hestöfl þar sem 276 þeirra koma frá 3,6 lítra bensínvél, en restin kemur frá rafmótorum. Fyrir vikið er hann aðeins 6 sekúndur í hundraðið. Cross Coupe GTE er Plug-In-Hybrid bíll og rafhlöður bílsins duga til aksturs fyrstu 30 kílómetrana.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent Inga segir já Innlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent