Í öðru sæti á listanum situr hljómsveitin Sólstafir með lagi Ótta sem er að finna á þeirra nýjustu plötu. En Sólstafir áttu einmitt lag ársins árið 2012 á X977. Breska sveitin Royal Blood situr í þriðja sæti með lagið Little Monster en hljómsveitin sló algjörlega í gegn á árinu 2014. Í fjórða sæti listans er svo annar nýliði og er þar á ferð Júníus Meyvant sem sló í gegn með laginu Color Decay, það fyrsta sem hann gaf út.
Af öðrum lögum á listanum má nefna lagið Bad Politics með hljómsveitinni Art is Dead en þessi skemmtilega íslenska hljómsveit kom fram á sjónarsviðið með miklum krafti um sumarið og sat lag þeirra um tíma í efsta sæti á Pepsi Max listanum og nægðu vinsældir þess að koma laginu í 6. sæti á árslistanum.
Þá eiga Múm, Kontinuum, Prins Póló, Mono Town, GusGus og Tilbury einnig lög á árslista X977.
1. Agent Fresco – Dark Water
2. Sólstafir – Ótta
3. Royal Blood – Little Monster
4. Júníus Meyvant – Color Decay
5. Queens of the Stone Age – If I Had a Tail
6. Art is Dead – Bad Politics
7. Royal Blood – Out of the Black
8. Kings of Leon – Don‘t Matter
9. Múm – The Colorful Stabwound
10. Queens of the Stone Age – Smooth Sailing
11. Half Moon Run – Full Circle
12. Kontinuum – Í huldusal
13. Foo Fighters – Something From Nothing
14. Future Islands – Seasons (Waiting On You)
15. Alt-J – Every Other Freckle
16. Prins Póló – París Norðursins
17. Hozier – Take Me To Church
18. Mono Town – Two Bullets
19. GusGus – Crossfade
20. Tilbury – Hollow
Listinn er valinn af hlustendum X977 í gegnum hlustendaráð stöðvarinnar og fjöldi spilana á árinu skipta einnig máli við val á árslistanum. Hægt er að skrá sig í hlustendaráð X977 hér.