Hrafn Jökulsson hlýtur viðurkenningu Barnaheilla Stefán Árni Pálsson skrifar 20. nóvember 2015 16:06 Stefán Þór Herbertsson, formaður KALAK, Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, Róbert Lagerman, varaforseti Hróksins og Kolbrún Baldursdóttir formaður Barnaheilla - Save the Children á Íslandi.
Hrafn Jökulsson hlaut í dag Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2015. Hrafn er landsþekktur rithöfundur, eldhugi og stofnandi skákfélagsins Hróksins. Áhersla hans á vináttu og á að valdefla börn og styrkja þau félagslega samræmast áherslum Barnaheilla á mannréttindi barna. Hrafn og félagar hans í Hróknum hófu „skáklandnám“ á Grænlandi árið 2003 og hafa í rúmlega 40 ferðum kennt grænlenskum börnum skák og gefið þeim gjafir á borð við taflsett, fatnað og aðrar nauðsynjavörur. Sama ár hófu þeir einnig að heimsækja vikulega börn á Barnaspítala Hringsins í þeim tilgangi að tefla við þau. Þá hefur KALAK vinafélag Grænlands og Íslands, þar sem Hrafn situr í stjórn, staðið fyrir því að grænlenskum börnum sé boðið í tveggja vikna ferðir til Íslands til að læra að synda. Barnaheill veita árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember. Viðurkenningin er afhent til að vekja athygli á Barnasáttmálanum og mikilvægi þess að íslenskt samfélag standi vörð um mannréttindi barna. Barnasáttmálinn er leiðarljós í öllu starfi Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Afhending viðurkenningarinnar fór fram í veislusal veitingastaðarins Nauthóls. Kolbrún Baldursdóttir, formaður Barnaheilla – Save the Children á Íslandi flutti ávarp auk þess sem Herdís og Ingibjörg Kristjánsdætur Linnet, fulltrúar úr ungmennaráði Barnaheilla, ávörpuðu samkomuna og fluttu tónlistaratriði. Einnig fluttu tónlistaratriði Halldór Jakobsson, 15 ára gítarnemi í Listaskóla Mosfellsbæjar, og Saga Matthildur Árnadóttir, sem stundar söngnám við FÍH. Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna stýrði athöfninni. Barnaheill - Save the Children á Íslandi eru hluti af alþjóðasamtökunum Save the Children International. Alþjóðasamtökin vinna að réttindum og velferð barna í 120 löndum og hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Hérlendis leggja samtökin áherslu á að standa vörð um réttindi barna, á þátttöku barna og á vernd barna gegn ofbeldi. Erlendis styðja Barnaheill - Save the Children á Íslandi menntun barna og mannúðarstarf vegna hamfara.
Mest lesið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Anthony Head er látinn Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið Fleiri fréttir Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Sjá meira