Ekki er Ísland fjarska fallegt Bakþankar skrifar 30. júní 2015 07:00 Það væri synd að segja að Ísland sé fjarska-fallegt. Þegar maður sér það frá útlöndunum gegnum sjónauka internetsins lítur það út eins og Patreksfjörður eftir dansleik á sjómannadaginn. Þar sér maður hvernig leiðinlegur og uppáþrengjandi Íslandsvinur er afgreiddur. Það fer þannig fram að herramenn, sem eru algjörlega á móti öllu ofbeldi, lemja hann í klessu. Það er ekki græðginni fyrir að fara hjá okkar mönnum því þeir skipta verkinu bróðurlega á milli sín. Svo er komið að fréttum og þær eru á þann veg að menn skamma Sigmund, menn skamma menn fyrir að skamma Sigmund og svo skammar Sigmundur menn fyrir að skamma Sigmund. Samt er ekkert að óttast, jú, nema Píratana. Í netheimum virðast Íslendingar flestir vera eineygðir kýklópar sem rífa hvern þann sjófaranda í sig sem hættir sér á öldur internetsins. Veðurfréttir eru síðan alla tíð svo sláandi að maður hreinlega kvefast við það að lesa þær. Svo kemur maður heim og lendir í návígi við land og þjóð. Í minni fyrstu miðbæjarferð sé ég sex þjóðfræg skáld fylla miðbæinn af andagift. Fólkið brosir í sólskininu og hvar sem maður kemur í kaffi eða kræsingar er maður hanteraður eins og kóngur. Svo fer ég vestur á Bíldudal og hitti þar vini og venslalið sem allt á það sameiginlegt að geta ekki sagt eitt styggðaryrði um náungann. Þar skín náttúrlega sólin uns fjöllin draga fyrir hana og hitinn kemst ekki undir tuttugu gráðurnar fyrr en ég er farinn að sofa. Það fæst líka skáldaleyfi og fer ég ekki varhluta af því. Síðan stoppa ég í Dölum og meðan systir mín og móðir rífa í sig rúgbrauð stekk ég upp í hlíð til þess að skvetta úr skinnsokknum. Þá kemur þar að hrossagaukur og segir mér velvalin orð með vængjum sínum meðan hann lækkar flugið. Ég svara að bragði: „Já, ég veit það. Það er ekkert að marka þetta béskotans internet.“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun