Það stefnir í seinasta Ljómann í kvöld Gunnhildur Jónsdóttir skrifar 31. desember 2015 11:00 Ljóminn, Gamlárskvöld
Undanfarin ár hafa 23 drengir af Seltjarnarnesi komið sér saman á gamlárskvöld og haldið heljarinnar partý sem nefnist Ljóminn. Með árunum hefur áramótafögnuðurinn stækkað og nú síðustu tvö ár verið haldið í íþróttaheimilinu á nesinu. Partýið er ætlað fyrir vini þeirra og vandamenn en hægt er þó að bjóða gestum með sér. Allir þeir sem ætla sér inn í partýið verða að vera á gestalista á facebook. „Þetta hefur gengið mjög vel fyrir sig seinustu ár, mögulega út af því að við reynum að hafa þetta lokað partý. Það eru allir bara komnir saman til að skemmta sér,“ segir Einar Rafn Ingimarsson einn skipuleggjenda Ljómans en þeir eiga von á um 1.500 manns í ár. Ljóminn, GamlárskvöldÞeir félagarnir byrjuðu með Ljómann árið 2009, þá í yfirgefinni verksmiðju. „Okkur þóknaðist þetta húsnæði og við ákváðum að henda í partý og bjóða öllum vinum okkar. Eftir það hefur þetta undið upp á sig. Annað árið var þetta haldið í tómu húsnæði í Reykjavík og svo fengum við Mjölnishúsið. Áður en við færðum okkur í íþróttahúsið héldum við þetta líka eitt skipti í Iðnó.“ Það gæti stefnt í að þetta gamlárskvöld verði það seinasta þar sem þessi vinahópur heldur Ljómann. „Mikil vinna er lögð í að halda þetta og við höfum rætt það að þetta gæti verið seinasti Ljóminn okkar. Það væri þó synd að leggja þessa hátíð niður og við værum alveg tilbúnir að leyfa yngri kynslóðinni að taka við keflinu. Það er eiginlega nauðsynlegt að það yrðu einhverjir sem við þekkjum og eru af nesinu eða vesturbænum þar sem hagnaðurinn af kvöldinu rennur beint til Gróttu,“ segir Einar en þeir félagarnir verða þrítugir á næsta ári.
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Fær nafn átta árum eftir opinberun Leikjavísir Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“