Ekki eyðileggja "góðu stundirnar“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 10. október 2014 09:50 „Heyrðu, hvernig gekk með þessa píu í gær?“ „Æi, ég tók eitthvað í hana og reyndi að kyssa hana. Þá bara brjálaðist hún og sagðist ætla að hringja á lögguna ef ég hætti ekki!“ „Oh, alltaf þarf löggan að eyðileggja góðu stundirnar.“ Þetta samtal heyrði ég á milli tveggja ungra pilta á Laugaveginum á sunnudagsmorgni fyrir stuttu. Þeir voru nýskriðnir af djamminu, enn þá hífaðir og ég er nokkuð viss um að þeir héldu sér gangandi á vímugjöfum sem eru aðeins sterkari en áfengi. En þeir hittu naglann á höfuðið. Löggan eyðileggur stundum „góðu stundirnar“. Það er náttúrulega glatað. Því þegar við stelpur segjum: „Hættu þessu eða ég hringi á lögguna“ erum við í raun að segja: „Vá, þú ert fallegasti maður sem ég hef séð. Mig langar að njóta ásta með þér og eyða ævinni í örmum þínum en ég bara verð að segja nei svo þú gangir á eftir mér og viljir mig meira.“ Er það ekki stelpur? Það er svo glatað að segja bara já strax. Gefa samþykki. Það tekur allt fútt úr eltingarleiknum. Þetta hlýtur löggan að vita. Skrítið að hún sé samt enn í því að eyðileggja „góðu stundirnar“. Er enginn búinn að segja þeim mönnum og konum sem halda uppi lögum og reglu í þessu landi hvað við konur meinum í alvöru þegar við segjum „nei“, „farðu af mér“, „hættu“, „slepptu mér“, „þetta er vont“? Jæja, þá. Þá geri ég það hér með. Og tala fyrir hönd allra kynsystra minna því þegar kemur að „góðu stundunum“ erum við allar eins. Við stelpur viljum láta áreita okkur. Við viljum að karlmenn þröngvi sér upp á okkur. Við viljum ekki að þeir hætti þegar við segjum nei. Og við viljum alls ekki að einhver skerist í leikinn þegar þeir sjá að við getum ekki varið okkur fyrir ágengum karlmönnum sem vilja komast í buxurnar okkar. Ok? #kaldhæðni Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Lilja Katrín Gunnarsdóttir Mest lesið „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun
„
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun