Reynsluheimur karla Hildur Sverrisdóttir skrifar 25. október 2014 07:00 Karlkyns leikskólakennarar eru á leið á karlaráðstefnu til að ræða það alvarlega vandamál hve fáir karlmenn eru leikskólakennarar. Spurning hvort sú karlaráðstefna verði gagnrýnd eins og karlaráðstefna utanríkisráðherra um jafnréttismál. Vonandi ekki, það á ekki að skipta máli hvaðan gott kemur. Karlaráðstefnur geta nefnilega alveg verið fín viðbót í jafnréttismálum, eins og til dæmis karlahópur Femínistafélagsins var á sínum tíma fín viðbót í baráttunni gegn kynferðisbrotum gagnvart konum. Fyrir nokkrum árum var vinur minn eini karlmaðurinn í hópi starfsmanna á leikskóla, og var þess vegna sá eini sem mátti ekki aðstoða börnin á klósettinu án eftirlits. Hann sagði mér að þótt hann skildi rökin að baki, um að það væru karlmenn sem í flestum tilfellum beittu börn kynferðisofbeldi, fyndist honum erfitt að vera sífellt því marki brenndur. Hann hafði á orði að þetta væri heldur eflaust ekki til þess fallið að fjölga karlmönnum við umönnun barna. Það er gott að heimurinn er orðinn meðvitaðri um hvers kyns ofbeldi gagnvart börnum og hvernig sé hægt að hindra það, en kostnaðurinn er að svona reglur eru settar. Smám saman fjölgar aðstæðunum þar sem karlmönnum líður eins og þeir séu stanslaust grunaðir um græsku; afarnir fá athugasemdir þegar þeir mynda barnabörnin á leikvellinum og menn eru beðnir um að skipta um sæti við konur í flugvélum ef þeir fá sæti við hliðina á ókunnugum börnum. Öryggi er mikilvægt en það verður alltaf að gæta jafnvægis á milli öryggis og frelsis. Við eigum að passa að áherslan á öryggi valdi því ekki að smám saman séum við gagnrýnislaust búin að skapa umhverfi sem gengur hættulega nærri frelsi og réttindum annarra; í þessu tilviki karlmanna. Þann vinkil málsins er mikilvægt að ræða áður en frelsisskerðing, sem er réttlætt með fordómum byggðum á einhverri tölfræði, er orðin sjálfsagður partur af tilveru þeirra. Kannski að angi af þeirri umræðu væri kvennaráðstefna þar sem konur ræða sín á milli hvað þær geta gert til að sporna við slíku misrétti gagnvart körlum. Mér þætti það til dæmis bara mjög fagurt. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hildur Sverrisdóttir Mest lesið Eingreiðsla til öryrkja í desember bundin við lögheimili á Íslandi Jón Frímann Jónsson Skoðun Þegar útborgunin hverfur: Svona geta fjölskyldur tapað öllu Már Wolfgang Mixa Skoðun Leikskólar sem virka: Garðabær í fremstu röð Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir Skoðun Olnbogabörn ríkisins góðan dag Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun Er Hvammsvirkjun virkilega þess virði? Ólafur Margeirsson Skoðun Þröng Sýn Hallmundur Albertsson Skoðun Útvarp sumra landsmanna Ingvar S. Birgisson Skoðun Siðlaus markaðsvæðing í heilbrigðisþjónustu Davíð Aron Routley Skoðun Skattar lækka um 3,7 milljarða en fötluð börn bíða áfram eftir þjónustu Sigurbjörg Erla Egilsdóttir Skoðun Hugleiðingar um Sundabraut Kristín Helga Birgisdóttir Skoðun
Olnbogabörn ríkisins góðan dag Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun
Skattar lækka um 3,7 milljarða en fötluð börn bíða áfram eftir þjónustu Sigurbjörg Erla Egilsdóttir Skoðun
Olnbogabörn ríkisins góðan dag Vigdís Gunnarsdóttir,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Þuríður Sverrisdóttir,Júnía Kristín Sigurðardóttir Skoðun
Skattar lækka um 3,7 milljarða en fötluð börn bíða áfram eftir þjónustu Sigurbjörg Erla Egilsdóttir Skoðun