Skipaumferð hrundi á norðausturleiðinni Kristján Már Unnarsson skrifar 21. desember 2014 19:45
Fraktsiglingar yfir norðurskautið um norðausturleiðina drógust óvænt saman um 70 prósent á þessu ári, eftir stöðuga aukningu undanfarin ár. Aðeins 23 flutningaskip virðast hafa siglt leiðina í ár miðað við 71 í fyrra. Sigling kínverska ísbrjótsins Snædrekans beint frá Kína til Íslands um Norður-Íshafið fyrir tveimur árum var dæmi um þá auknu áherslu sem ríki heims hafa sýnt norðursiglingum og hérlendis er meðal annars verið að kanna möguleika á stórri þjónustuhöfn við Langanes. Siglingaleiðin milli Evrópu og Japans með norðurströnd Rússlands er fjórðungi styttri en leiðin um Súez-skurðinn og því hafa menn spáð þvi að skipaumferð myndi stóraukast eftir því sem hafís minnkaði vegna hlýnunar. Og sú hefur verið þróunin undanfarin ár. Þannig fór metfjöldi skipa þessa leið í fyrra, 71 skip, sem var 54 prósenta aukning frá árinu á undan. En nú hefur óvænt orðið bakslag, raunar hrun, því aðeins 23 skip hafa siglt þessa leið í ár, eða þriðjungur af þeim fjölda sem fór í fyrra, samkvæmt frétt norska fréttamiðilsins Barentsobserver. Ef mælt er í frakt er samdrátturinn enn meiri, eða 80 prósent, 270 þúsund tonn í ár, miðað við 1,3 milljónir tonna í fyrra, samkvæmt tölum sem hafðar eru eftir yfirmanni siglingastofnunar Rússland. Sá vill þó ekki meina að viðskiptabann og versnandi samskipti Rússlands og vesturlanda skýri samdráttinn en nefnir að tvö af stærstu skipafélögum á leiðinni hafi ekki náð að endurnýja samninga. Norðausturleiðin liggur um efnahagslögsögu Rússlands og kjarnorkuknúnir ísbrjótar Rússa þjónusta skipin. Þá er því haldið fram í nýlegri vísindagrein að spár um norðurslóðasiglingar séu of bjartsýnar, sérstaklega fyrir gámaflutninga. Þættir eins og illviðri og rekís kalli á dýrari skip og takmarkað netsamband og björgunarþjónusta geri siglingar þarna um lítt kræsilegar.
Tengdar fréttir Stór áfangi að þjónustuhöfn Norðurslóða við Finnafjörð Oddviti Langanesbyggðar hefur fulla trúa á því að risahöfn við Finnafjörð verði að veruleika eftir að eitt stærsta hafnafyrirtæki Evrópu, Bremenports, ritaði undir samstarfssamning um að kosta mörghundruð milljóna króna undirbúningsvinnu. 22. maí 2014 22:00 Staðsetning Íslands gefur mikla möguleika Formaður samtaka norskra skipaeigenda segir að Ísland sé í lykilstöðu vegna siglinga á norðurslóðum í framtíðinni. Spurningamerki eru þó sett við öryggismál á svæðinu varðandi siglingar vöruflutningaskipa og ekki síður farþegaskipa. 22. janúar 2014 07:00 Leiðbeiningar birtar fyrir íshafssiglingar Bandaríska siglingastofnunin hefur gefið út alþjóðlegar leiðbeiningar um siglingaleiðina um Íshafið, svokallaða norðausturleið. 2. febrúar 2014 11:00 Snædrekinn kominn til Reykjavíkur Kínverska rannsóknarskipið og ísbrjóturinn Snædrekinn liggur nú við Ytrihöfn í Kollafirði. Það lagðist að bryggju um níu leytið í morgun. 14. ágúst 2012 13:57 Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira
Stór áfangi að þjónustuhöfn Norðurslóða við Finnafjörð Oddviti Langanesbyggðar hefur fulla trúa á því að risahöfn við Finnafjörð verði að veruleika eftir að eitt stærsta hafnafyrirtæki Evrópu, Bremenports, ritaði undir samstarfssamning um að kosta mörghundruð milljóna króna undirbúningsvinnu. 22. maí 2014 22:00
Staðsetning Íslands gefur mikla möguleika Formaður samtaka norskra skipaeigenda segir að Ísland sé í lykilstöðu vegna siglinga á norðurslóðum í framtíðinni. Spurningamerki eru þó sett við öryggismál á svæðinu varðandi siglingar vöruflutningaskipa og ekki síður farþegaskipa. 22. janúar 2014 07:00
Leiðbeiningar birtar fyrir íshafssiglingar Bandaríska siglingastofnunin hefur gefið út alþjóðlegar leiðbeiningar um siglingaleiðina um Íshafið, svokallaða norðausturleið. 2. febrúar 2014 11:00
Snædrekinn kominn til Reykjavíkur Kínverska rannsóknarskipið og ísbrjóturinn Snædrekinn liggur nú við Ytrihöfn í Kollafirði. Það lagðist að bryggju um níu leytið í morgun. 14. ágúst 2012 13:57