Bílar

Golf bíll ársins hjá Motor Trend

Finnur Thorlacius skrifar
Volkswagen Golf af sjöundu kynslóð.
Volkswagen Golf af sjöundu kynslóð.
Volkswagen Golf var nýlega valinn ársins hjá bandaríska bílatímaritinu Motor Trend. Svo margar gerðir eru til af Volkswagen Golf að tímaritið tiltekur sérstaklega að Golf 1,8T, Golf TDI Clean Diesel, Golf EV og Golf GTI séu bílarnir sem hljóta þessi árlegu verðlaun nú.

Af 23 bílgerðum sem komu til greina í vali Motor Trend komust 10 bílar í úrslit. Voru það, auk Golfsins, bílarnir Audi A3, BMW 2-línan, Ford Mustang, Honda Jazz, Hyundai Genesis, Kia Sedona, Lexus RC, Maserati Ghibli og Mercedes Benz C-Class.

Dómnefndin rökstuddi val sitt með því að Golfinn uppfylli sérhverjar þarfir bíleigenda, hann sé troðinn af nýjustu tækni, eyði afar litlu (eða engu í tilfelli rafmagnsútgáfunnar) og fá megi af honum öfluga en sparneytna sportútgáfu. Bílarnir sem komust í úrslit fóru í gegnum miklar prófanir á vegum blaðsins og eftir það var sérhverjum bíl gefin einkunn fyrir fjöldamarga þætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×