Audi A9 flaggskip á LA Auto Show Finnur Thorlacius skrifar 15. október 2014 09:15 Ekki ólaglegur bíll hér á ferð frá Audi.
Þrátt fyrir að Audi A8 sé mjög stór fólksbíll ætlar Audi að framleiða enn stærri fólksbíl og vafalaust með enn meiri lúxus. Með hækkandi tölu í nafni Audi bíla fylgir yfirleitt meiri tækni og þægindi, auk stærðar. Þessi bíll verður flaggskip Audi og ber nafnið A9. Að þessum bíl hefur verið ýjað í langan tíma, en þar sem Audi hefur nú sent frá sér „teaser“ myndir af bílnum og hefur að auki gefið það upp að hann verði sýndur á bílasýningunni í Los Angeles í næsta mánuði, má telja líklegt að af smíði hans verði. Audi hefur einnig gefið upp að bíllinn verði byggður á sama undirvagni og næsta kynslóð A8 bílsins. Með þessum bíl hefur Audi vafalaust hugsað sér að vera samkeppnisfærari við S-Class bílinn frá Mercedes Benz sem fá má í mörgum útfærslum og mishlaðinn lúxus. Audi A9 er með coupe-lagi eins og Audi A7 og Audi A5.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent