500 hestafla Peugeot jepplingur Finnur Thorlacius skrifar 6. október 2014 13:38 Peugeot Quartz Concept er ofuröflugur jepplingur.
Þessi tilraunabíll, Peugeot Quartz Concept, stendur nú á sýningarpöllunum á bílasýningunni í París og vekur þar eðlilega athygli. Hann er enginn letingi með 500 hestafla tvinnaflrás, 270 hestafla 1,6 lítra og fjögurra strokka bensínvél og tvo öfluga rafmótora sem koma heildarhestaflatölunni uppí 500 hestöfl. Rafmótorarnir eru bæði á fram- og afturöxli og þeir duga bílnum til að aka fyrstu 50 kílómetrana eingöngu á rafmagni. Peugeot Quartz Concept stendur á sama undirvagni og bíll ársins í Evrópu og á Íslandi, Peugeot 308. Hann er á 23 tommu felgum, með LED aðalljós og grill bílsins breytist í útlit eftir því frá hvaða sjónarhorni áhorfendur sjá það. Bíllinn er tvílitur, grár að framan og svartur að aftan og er allur hinn grimmilegasti fyrir vikið. Engum sögum fer af framleiðslu þessa bíls og er vafalaust meiningin hjá Peugeot að fá viðbrögð frá gestum sýningarinnar og blaðamönnum áður en nokkuð verður ákveðið um framtíð hans.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent