Bílamerki Cord til sölu Finnur Thorlacius skrifar 23. september 2014 13:05 Cord 812 frá árinu 1936. Hann var með V8 vél og "pop-up" aðalljós.
Tæplegast er mikið virði í bílafyrirtæki sem smíðaði síðasta bíl sinn árið 1937. Það er samt til sölu og ef það selst ekki fyrir 22. október verður það boðið upp þann 22. nóvember. Þetta fyrirtæki er bandarískt og heitir Cord. Cord var stofnað árið 1929 af manni sem bar sama nafn og bílarnir og framleiddi Cord flotta lúxusbíla en smíði þeirra fór fram hjá Auburn Automobile í Indiana fylki. Cord var þekkt fyrir margar frábærar uppfinningar og mörg nýmæli sáust í Cord bílum. Meðal annars var Cord bíll fyrsti framhjóladrifni bíllinn sem boðinn var bandarískum almenningi. Einnig þóttu bílar Cord fallegir gripir eins og á þessum myndum má sjá. Gerð var tilraun til þess að endurreisa merki Cord á sjöunda áratug síðustu aldar er maður að nafni Glenn Pray keypti Cord, en af framleiðslu varð ekki. Merkið var þó áfram í eigu hans, en hann féll frá árið 2011. Nú eru það afkomendur hans sem ætla að selja bílamerkið. Það sem afkomendur Glenn Pray hafa nú til sölu er tvíþætt, það er merki Cord og framleiðslurétt til bíla merkta Cord og hinsvegar leyfi til framleiðslu leikfangabíla og líkana af fyrri gerðum Cord bíla. Cord frá árinu 1929.Ekki er þessi síður fallegur, Cord árgerð 1930.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður