Linda Pé bjargar hryssu Ellý Ármanns skrifar 20. ágúst 2014 15:45 myndir/árni
Linda Pétursdóttir brást skjótt við þegar hún sá hryssu fasta í skurði í sjálfheldu við Bessastaðafleggjarann í dag. Við ræddum við einn af bjargvættunum, Árna Stefán Árnason, hugsaði sig ekki tvisvar um þegar Linda hringdi í hann og bað um hjálp við að bjarga hryssunni.Árni og fleiri reyndu allt hvað þeir gátu til að ná hryssunni upp úr skurðinum.Fékk óvænt símtal „Ég var heima þegar Linda Pétursdóttir hringir í mig og segir mér frá þessu og ég rýk af stað. Ég var nýbúinn að horfa á myndband um björgun á fíl í Kenya," segir Árni og heldur áfram frásögninni: „Ég fór að Bessastaðaafleggjaranum þar sem hryssan var pikkföst vel upp að hálsi í drullupitti. Þarna var fullt af fólki. Við komum köðlum undir hana og það tókst eftir smá fyrirhöfn að koma henni upp úr skurðinum."Setur spurningamerki við slysið „Við byrjuðum á því að toga með aðstoð jeppa en þetta var dálítil fyrirhöfn. Fremri helmingurinn var laus og það kom grafa og við náðum að toga hryssuna upp en hún var örmagna - búin að vera þarna lengi greinilega,“ segir Árni. „Hún lá þarna í einn og hálfan tíma án þess að standa í fæturna þegar við náðum henni upp úr mýrinni. Við hringdum í dýralækni úr Víðidal sem aðstoðaði okkur. Þannig að það er búið að fjarlægja hestinn og koma honum í hús. Eigandinn er staddur í Svíþjóð en ég á eftir að setja ýmis spurningarmerki við þetta." „Mér fannst skemmtilegt að geta tekið þátt í þesssu en hryssan var banhungruð og þurfti sinn tíma til að safna orku. Þarna var vökult auga á ferðinni, hún Linda, en fyrstur kom auga á hryssuna íbúi á Álftanesi sem átti leið hjá. Þetta tókst alveg ljómandi vel," segir bjargvætturinn ánægður.Árni brást skjótt við þegar Linda hringdi í hann.Hér hugar Linda að hryssunni sem gat ekki staðið upp eftir björgunina.
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“