Harmageddon

Púlsinn 21.ágúst 2014

Orri Freyr Rúnarsson skrifar
Hljómsveitin Slipknot hefur nú staðfest að sveitin komi fram á Soundwave hátíðinni í Ástralíu á næsta ári og verða það fyrstu tónleikar hljómsveitarinnar síðan að þeir gáfu út lagið The Negative One í síðasta mánuði, en lagið er það fyrsta sem þeir hafa gefið út í heil sex ár. Enn ríkir mikil leynd yfir því hver muni tromma með hljómsveitinni en það ætti þá væntanlega að skýrast á næstunni.

Í síðustu viku bárust fréttir þess efnis að Tame Impala hljómsveitin væri ásökuð um að lagið Feel Like We Only Go Backwards væri stolið frá argentískri barnastjörnu. Forsvarsmenn vefsíðunnar sem birtu fréttina upphaflega hafa nú viðurkennt að um grín væri að ræða enda langsótt að ástralska hljómsveitin hefði heyrt lag frá argentískri barnastjörnu frá 1989. Engu að síður virðist þessi frétt ætla að hafa alvarlega afleiðingar því að barnastjarnan fyrrverandi, Pablito Ruiz, hefur þegar sett sig í samband við lögfræðinga til að fara yfir hvort að lögin tvö séu of lík.

Hljómsveitin Blink 182 minnir á sig.Vísir/Getty
Tom DeLonge, gítarleikari Blink 182, hefur lofað því að hljómsveitin muni bjóða upp á eitthvað sérstakt þegar að hún kemur fram á Reading hátíðinni um helgina. DeLonge sagði að hljómsveitin myndi flytja eitthvað af lögum af þröngskífunni sem þeir gáfu út 2012 ásamt því að spila sín vinsælustu lög. DeLonge sagði jafnframt að hljómsveitin myndi ekki spila nein alveg ný lög sem ætti eftir að gefa út.

Forsvarsmenn NFL deildarinnar hafa nú viðurkennt að þeir fari fram á að þær hljómsveitir sem koma fram í hálfleik á Super Bowl greiði þeim háar fjárhæðir gegn því að spila á viðburðinum. Á síðasta ári kom hljómsveitni Red Hot Chili Peppers fram í hálfleik og er talið að um 115 milljónir hafi horft á þá tónleika á meðan að 112 milljónir horfðu á leikinn sjálfan. Frammistaða Red Hot Chili Peppers á þeim tónleikum var hinsvegar nokkuð umdeild enda voru hljóðfæri þeirra ekki í sambandi og viðurkenndu þeir fúslega að þeir hafi einungis þóst spila á meðan að upptaka var í gangi.








×