Jaguar Land Rover hefur ekki við að framleiða Finnur Thorlacius skrifar 8. ágúst 2014 10:15 Range Rover er vinsæll bíll nú um stundir.
Margir bílaframleiðendur væru alveg til í að glíma við það vandamál sem Jaguar Land Rover stendur frammi fyrir nú. Fyrirtækið hefur einfaldlega ekki við að framleiða bíla uppí þá miklu eftirsprn sem eftir þeim eru. Biðlisti eftir bílunum Range Rover og Range Rover Sport er nú 6 mánuðir á flestum mörkuðum. Þessir bílar eru framleiddir í tveimur verksmiðjum og hægt væri að auka framleiðslu þeirra nokkuð en eitt ljón er í veginum, verksmiðjurnar geta ekki sprautað fleiri bíla en nú nema með því að setja upp stærri aðstöðu til þess arna og það tekur tíma. Að auki var meiningin að bæta við einni bílgerð í Solihull í Bretlandi, annarri verksmiðju sem framleiðir áðurnefnda bíla og það eykur aðeins á vandamálið.
Mest lesið Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent