Lögreglan kaupir sérútbúna Volvo lögreglubíla Finnur Thorlacius skrifar 25. júlí 2014 12:27 Volvo V70 eins og lögreglan hefur nú til umráða.
Ríkiskaup, fyrir hönd ríkislögreglustjóra, hefur gert samning við Brimborg um kaup á sex Volvo V70 D4 Drive-E lögreglubílum í kjölfar útboðs. Volvo lögreglubílarnir uppfylltu allar gæðakröfur útboðs Ríkiskaupa. Allir bílarnir verða sérútbúnir lögreglubílar frá verksmiðju Volvo í Gautaborg í Svíþjóð. Bílarnir verða í notkun hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og lögreglunni á Suðurnesjum. Volvo lögreglubílarnir eru sérútbúnir að því leytinu að undirvagninn og hemlakerfið er sérstaklega styrkt til að þola mikið álag. Slit-skynjarar eru á bremsubúnaði og álfelgurnar eru hannaðar með það að markmiði að auka loftflæðið að bremsunum til að auka kælingu. Rafkerfi Volvo lögreglubílana er öflugra og raflögnin gerir ráð fyrir ýmsum aukabúnaði sem nauðsynlegur er í lögreglubílum. Af sömu ástæðu er öflugri „heavy duty“ rafgeymir í bílunum. Sæti Volvo lögreglubílana eru að auki hönnuð til að þola meira álag. Volvo lögreglubílarnir eru búnir kraftmikilli 181 hestafla dísilvél með 8 þrepa sjálfskiptingu sem skilar 400 Nm í togkraft. Lítil mengun og sparneytni einkennir þá en CO2 losun er aðeins 119 g/km og eyðsla í blönduðum akstri einungis 4,5 l/100 km. „Þetta er í fyrsta skiptið sem lögreglan á Íslandi fær afhenta sérútbúna lögreglubíla beint frá bílaverksmiðju. Umbreytingarferlið hjá Volvo fyrir lögreglubíla tekur um 45 klukkustundir sem tryggir að þeir þola betur gríðarlegt álag m.a. í forgangsakstri.“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar. Volvo afhendir um 500-600 lögreglubíla á hverju ári til lögregluembætta víða um heim. Flestir eru seldir í Svíþjóð þar sem Volvo hefur um 90% markaðshlutdeild lögreglubíla. Einnig eru sérútbúnir Volvo lögreglubílar m.a. í notkun í Bretlandi, Belgíu, Hollandi og Sviss. Volvo stefnir að því að tvöfalda magn seldra lögreglubíla á komandi árum.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður