Fyrsti laxinn úr Bíldsfelli var maríulax Karl Lúðvíksson skrifar 30. júní 2014 10:15 Linda Björk með 13 punda lax sem hún veiddi á Bíldsfelli í gærkvöldi.
Fyrsti laxinn var færður til bókar á Bíldsfelli í Soginu í gær en það var hópur góðra vina sem eyddi deginum þar í blískaparveðri og alveg ágætis veiði. Engin af þeim sem voru í hópnum hafi veitt svæðið áður og einn ekki veitt á flugu áður svo það var mikil áskorun fyrir hópinn að mæta á Bíldsfell á þessum árstíma sem yfirleitt þykir mjög rólegur. En dagurinn gekk vel hjá hópnum og þegar upp var staðið var sett í fjóra laxa en aðeins einn af þeim náði alla leið í háfinn og það var Linda Björk hjá Hress í Hafnarfirði sem setti í þann stóra í Sakkarhólma á Rauða Frances 1/2" túpu eftir að hafa sett í annan lax á sama stað sem reif sig lausann eftir nokkrar mínútur. Nokkrar vænar bleikjur komu á land og fleiri sluppu ef en töluvert sást af bleikju á svæðinu og mest við Sakkarhólma, Breiðu og Neðra Horn en þetta eru allt veiðistaðir sem gefa góða bleikjuveiði. Það verður spennandi að fylgjast með Soginu næstu daga en byrjunin lofar alla vega góðu.
Stangveiði Mest lesið Veiðilíf Flugubúllunar komið út Veiði Tveir laxar á land við opnun í Hrútafjarðará Veiði Fjólmennt við Þingvallavatn í dag Veiði Kröfurnar miklar eftir góðærið Veiði Fyrsti lax sumarsins kominn á land í Ytri Rangá Veiði Ytri-Rangá komin yfir 4 þúsund laxa Veiði Svalbarðsá komin yfir 300 laxa Veiði Meira farið að bera á bleikju í Soginu Veiði Áhrif jakaflóða á laxveiðiár Veiði Fékk fjóra laxa og alla yfir 90 sm í Víðidalsá Veiði