Kaupa Indverjar Saab? Finnur Thorlacius skrifar 18. júní 2014 09:43 Saab 9-3 Aero
Svo virðist sem enn ein eigendaskiptin gætu orðið á sænska bílaframleiðandanum Saab. Það er indverski bílaframleiðandinn Mahindra & Mahindra, ásamt öðrum ónefndum asískum bílaframleiðanda sem hyggst nú kaupa Saab af núverandi eiganda, National Elecrtric Vehicle Sweden (NEVS). Svo virðist sem NEVS hafi reist sér hurðarás um öxl með því að hefja aftur framleiðslu á Saab 9-3 bílnum sem meiningin var svo í framhaldinu að gera að rafmagnsbíl. Fyrirtækið lenti fljótlega í fjárþurf þar sem aðrir fjárfestar sem ætluðu í upphafi að koma einnig að framleiðslunni hrukku úr skaftinu. Mahindra & Mahindra sér kaupin á Saab sem stystu leið til að eignast lúxusbílamerki. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Mahindra & Mahindra ber í víurnar í Saab, en fyrirtækið var eitt þeirra sem lýsti yfir áhuga á kaupum á því áður en NEVS eignaðist Saab. Heyrst hefur að Mahindra & Mahindra hafi síðan beðið á kantinum eftir því að NEVS lenti í kröggum með Saab og bíði eins og gammur eftir því að eignast það fyrir lítið fé.
Mest lesið Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Innlent