Segir Ísland síðasta vígi kristinna manna Frosti Logason skrifar 30. maí 2014 17:39
Gústaf Níelsson, sagnfræðingur og fyrrverandi útvarpsmaður á Útvarpi Sögu, spjallaði í morgun við Harmageddon. Hann hefur verið virkur í umræðunni um moskur og múslima undanfarna daga og hefur í henni meðal annars lagt það til Ísland bannaði hin íslömsku trúarbrögð og setti þannig fordæmi fyrir alla Evrópu. „Eftir því yrði tekið um allan hinn vestræna heim, enda eru þetta andstyggileg haturstrúarbrögð á miðaldarstigi.“ Sagði Gústaf í einni umræðunni nýverið. Þáttastjórnendur Harmageddon báðu Gústaf um að útskýra mál sitt betur og úr því varð áhugavert spjall. Hann sagðist telja mikilvægt að hér á landi yrði staðið vörð um kristin gildi Íslendinga og lýsti um leið áhyggjum af því að reist yrði moska í Reykjavík. „Ísland er síðasta kristna vígið, og það er að falla. Það er bara þannig“ sagði Gústaf. „Eru það fordómar að hafa þessa skoðun að það sé ekki heppilegt að fylla landið af múslimum?“ spyr Gústaf að lokum. Umræðuna getur þú hlustað á hér.
Harmageddon Mest lesið Hvetur til sniðgöngu verslana Bónus og Hagkaupa Harmageddon Væntanlegt lag frá Muse alltof gróft fyrir útvarp Harmageddon Bangsahommahátíð í Reykjavík Harmageddon Tuttugu ára afmæli X-977 - Mammút Harmageddon Fyrirmyndarmæður slá í gegn á internetinu Harmageddon Miðill spáir stórum jarðskjálfta á morgun Harmageddon Lay Low er skotin í Mary Poppins Harmageddon Apple auðveldar viðskiptavinum að eyða U2 plötu úr tækjum sínum Harmageddon Lay Low frumsýnir nýtt myndband Harmageddon Lásasmiður sem skjöldur lögreglu? Harmageddon