Af hverju enginn bíll kemst hraðar en 430 nema Volkswagen Finnur Thorlacius skrifar 20. mars 2014 17:06 Ehra-Lessien brautin í Þýskalandi.
Bílaframleiðendur gætu smíðað bíl sem kæmist hraðar en Bugatti Veyron Super Sport sem náð hefur 431 km hraða. Bugatti er í eigu Volkswagen. En svo fremi sem Volkswagen bílasamstæðan opnar ekki dyrnar fyrir öðrum framleiðendum að nota einu brautina í heiminum þar sem ná má slíkum hraða mun enginn bíll ná því nema framleiddur af Volkswagen eða undirmerkjum þess. Þessi eina braut er Ehra-Lessien brautin í Þýskalandi, stærsta og flottasta bílaprófunarbraut í heimi. Hún er staðsett rétt við gömlu landamæri A-Þýskalands og er 96 km löng og byggð árið 1965. Flugbann er yfir brautinni til að ekki komi til þess að nokkur geti myndað það sem þar fer fram. Til þess að fá skráð hraðaheimsmet þarf bíll að fara tvær ferði, fram og til baka, og meðaltal hámarkshraðans úr báðum ferðum er hinn skráði tími. Þetta gerði Bugatti bíllinn er hann náði hraðaheimsmetinu. Um daginn náði Hennessy Venom GT 435 km hraða á flugbrautinni sem NASA notar fyrir lendingar á geimskutlum sínum. Ekki fékkst leyfi NASA til að fara aðra ferð til baka og því ekkert heimsmet sett fyrir vikið. Ekki finnst betri og lengri braut en þessi og því harla ólíklegt að nokkur bíll á næstunni nái heimsmetinu af Bugatti bílnum, nema Volkswagen leyfi akstur slíks bíls á sinni braut. Volkswagen hefur ekki áhuga á því að annar bíll en framleiddur af Volkswagen bílasamstæðunni nái heimsmetinu af þeim og því eiga aðrir bílaframleiðendur harla lítinn séns. Brautin var byggð árið 1965 og hér er verið að prófa VW Bjöllu á henni.
Mest lesið „Ísland fyrst, svo allt hitt“ Innlent Andrés við Epstein árið 2011: „Við erum saman í þessu“ Erlent Slapp með skrekkinn við myndatöku í Reynisfjöru Innlent Allir lifandi gíslarnir lausir úr prísund sinni Erlent Rússar uggandi vegna tals um Tomahawk flaugar fyrir Úkraínu Erlent Algengast að fólk láni eða fái lánuð verkja- og róandi lyf Innlent Gert að vara við sjaldgæfum fylgikvilla Erlent Flugnördar heims kveðja fegurstu flugvél Íslands Innlent Fágætar bækur hurfu í tugatali úr bókasöfnum og reyndust allar rússneskar Erlent Bein útsending: Trump ávarpar ísraelska þingið Erlent