Sendibíll ársins 2014 frumsýndur í Brimborg Finnur Thorlacius skrifar 28. mars 2014 09:45 Forde Transit Connect.
Brimborg frumsýnir Ford Transit Connect, sendibíl ársins 2014, á morgun, laugardag frá kl. 12 til 16. Ford er fyrsti framleiðandinn sem hefur hlotið þessi verðlaun tvö ár í röð. Ford Transit Connect er nýr bíll frá grunni, með nýjan undirvagn, nýjar vélar, nýtt útlit og innanrými. Bíllinn er fáanlegur með sparneytinni 1,6TDCi dísilvél með Start-Stop spartækni en allar dísilvélarnar uppfylla þau skilyrði sem þarf til að fá frítt í stæði í miðbæ Reykjavíkur í 90 mínútur í senn. Nýr Ford Transit Connect er einnig fáanlegur með EcoBoost bensínvél sem valin hefur verið vél ársins tvö ár í röð. Bílinn má einnig fá sjálfskiptan með 1,6 lítra og 150 hestafla bensínvél. Hann er í boði í tveimur lengdum og þriggja manna með hliðarhurðum beggja vegna. Hann er búinn SYNC samskiptakerfinu og með upphitanlega framrúðu. Í styttri gerð bílsins er hægt að flytja hluti sem eru 3 metrar að lengd og í þeirri lengri 3,4 metrar. Active City Stop búnaður minnkar líkur á árekstri á litlum hraða. Ford Transit Connect með bensínvél kostar frá 2.382.470 kr. án vsk. og með dísilvél frá 2.589.641 kr. án VSK. Til viðbótar við frumsýninguna á laugardaginn er áhugasömum boðið að kíkja í morgunkaffi föstudaginn 28. mars og mánudaginn 31. mars frá kl. 8. Hörður Guðjónsson mun taka á móti gestum og fræða áhugasama um kosti Ford Transit Connect.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent